
Sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs Ísafjarðarbæjar
Ísafjarðarbær auglýsir laust til umsóknar 100% starf sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs. Meginhlutverk umhverfis- og eignasviðs er að fara með skipulags- og byggingarmál sveitarfélagsins, fara með alla eignaumsjón og rekstur vatns- og fráveitu. Sviðsstjóri ber ábyrgð gagnvart bæjarstjóra í öllum störfum sínum og ákvörðunum. Sviðsstjóri ber jafnframt ábyrgð á rekstri Fasteigna Ísafjarðarbæjar ehf. sem hefur tugi íbúða til útleigu. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi með mikla skipulagshæfileika.
Nýtt skipurit fyrir sviðið verður sett í október af bæjarstjórn. Samkvæmt því munu tveir deildarstjórar skipta með sér hlutverkum sviðsins, en útfærsla verkaskiptingar og innleiðing skipuritsins verður eitt af fyrstu verkefnum nýs sviðsstjóra. Aukinn fjöldi stöðugilda endurspeglar aukið umfang verkefna sem framundan er, bæði beint hjá bænum og í uppbyggingu í samfélaginu. Meðal verkefna næstu misseri er uppbygging verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði, bygging slökkvistöðvar og húsa fyrir hafnasjóð, yfirtaka hluta verkefna heilbrigðiseftirlits og afgreiðsla fjölmargra skipulagstillagna sem eru í vinnslu.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eftir nánara samkomulagi.
Í sveitarfélaginu búa tæplega 4000 íbúar en Ísafjarðarbær varð til þann 1. júní 1996 við sameiningu sex sveitarfélaga. Bæjarfélagið er víðfeðmt og nær allt frá Arnarfirði að sunnanverðu að Geirólfsnúpi á Hornströndum. Byggðarkjarnar sveitarfélagsins eru fimm: Flateyri, Hnífsdalur, Ísafjörður, Suðureyri og Þingeyri.
Ísafjarðarbær er skemmtilegur og litríkur bær með fjölbreytt menningarlíf. Bærinn hefur upp á margt að bjóða; öfluga og framsækna skóla, fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf, blómlegt tónlistarlíf, góða þjónustu og verslanir, eitt besta skíðasvæði landsins og endalausa möguleika til að njóta einstakrar náttúru svæðisins. Nánari upplýsingar um sveitarfélagið má nálgast á heimasíðu Ísafjarðarbæjar, www.isafjardarbaer.is.
· Ábyrgð á þjónustu, rekstri og starfsmannamálum sviðsins
· Ábyrgð og umsjón með umhverfis-, skipulags- og byggingarmálum
· Framkvæmdastjórn eða seta í stjórn Fasteigna Ísafjarðarbæjar
· Ábyrgð á verklegum framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins og opnum svæðum í eigu þess
· Ábyrgð á útboðum, gerð útboðsgagna og verksamninga vegna framkvæmda
· Umsjón með gerð fjárhagsáætlana og kostnaðareftirliti
· Háskólamenntun sem nýtist í starfi, próf á sviði verk- eða tæknigreina er kostur
· Stjórnunarreynsla, leiðtoga- og stjórnunarhæfni
· Reynsla og þekking á gerð kostnaðaráætlana, fjárhagsáætlana og samninga
· Góð hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki
· Frumkvæði og metnaður
· Góð skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
· Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
· Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku, önnur tungumálakunnátta kostur
Icelandic
English



