
Lífland ehf.
Lífland ræktar lýð og land. Þjónusta okkar sýnir ræktarsemi við grunnstoðir mannlífs um allt land. Með fjölbreyttu vöruúrvali og vísindalegum vinnubrögðum sköpum við góðan jarðveg fyrir hverskonar rækt; jarðrækt, búfjárrækt, nautgriparækt og hrossarækt.
Þungamiðjan í starfi okkar er þó ekki síst mannrækt í víðustu merkingu þess orðs. Íslendingar hafa sterka þörf fyrir að komast í snertingu við uppruna sinn og náttúru landsins.
Það gildir einu hver klæðist stígvélunum - stoltur bóndi, frískleg hestakona eða fjölskyldufaðir í sumarhúsi - þau vita hvar þau standa. Lífland gefur þeim þessa jarðtengingu.
Lífland er markaðsdrifið þjónustufyrirtæki sem leggur áherslu á að uppfylla þarfir og óskir viðskiptavina. Starfsemi fyrirtækisins lýtur annars vegar að þjónustu tengdri landbúnaði og tengist hins vegar hestaíþróttum, dýrahaldi, útivist og þjónustu við matvælaiðnaðinn.
Hlutverk Líflands er að bæta árangur viðskiptavina sinna. Við viljum sjá fyrir breytingar á þörfum okkar viðskiptavina og bjóða áhugaverðustu lausnirnar fyrir þá á hverjum tíma fyrir sig.
Lífland rekur tvær verksmiðjur, annars vegar fóðurverksmiðju á Grundartanga og hins vegar kornmyllu í Korngörðum í Reykjavík ásamt því að reka Nesbúegg. Skrifstofur og lager eru staðsett í Brúarvogi, Reykjavík. Verslanir Líflands eru á Lynghálsi, Reykjavík, Borgarbraut Borgarnesi, Grímseyjargötu Akureyri, Ormsvöllum Hvolsvelli, Efstubraut Blönduósi og Austurvegi Selfossi.

Starf í fóðurverksmiðju Líflands
Starf í fóðurverksmiðju Líflands
Lífland leitar að öflugum og handlögnu starfsfólki til að sinna ýmsum verkefnum í fóðurverksmiðju Líflands á Grundartanga.
Um er að ræða tvö störf:
- Dagvinna 8-17 (mán- fim og til 16 á föst) og tilfallandi afleysingar á vöktum
- Lífland sér um ferðir frá höfuðborgarsvæðinu að Grundartanga
- Góð laun í boði
Helstu verkefni og ábyrgð
- Framleiðsla á fóðri
- Umsjón með hráefnalager
- Sekkjun í smásekki og stórsekki
- Þrif á verksmiðju
- Löndun á hráefnum
- Ýmis tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af viðhaldi á vélum og búnaði
- Bílpróf æskilegt
- Vinnuvélaréttindi æskileg
- Tölvukunnátta æskileg
- Íslenskukunnátta æskileg
Advertisement published12. August 2026
Application deadline31. August 2026
Language skills
ÍslenskaRequired
Location
Klafastaðavegur 1, 301 Akranes
Type of work
Skills
Driver's licenceHeavy machinery license
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (9)

Nesbú leitar að hlutarstarfsfólki/Nesbú is looking for part time staff (Selfoss)
Nesbú

Lyfjapökkun
Heilsa

Sérfræðingur í sjónrænni gæðaskoðun / Visual Inspection Technologist
Alvotech hf

Framleiðslustarf í Koltrefjadeild | Össur
Embla Medical | Össur

Kjötvinnsla - framtíðarstarf
Kjötkompaní ehf.

Senior Aseptic Manufacturing Technician/ Yfirframleiðslutæknir í Smitgátarframleiðslu
Alvotech hf

Framleiðslustarf á Dalvík - vaktavinna / Production work in Dalvík - shift work
Sæplast Iceland ehf

Framleiðslustarf í Silicone deild - framtíðarstarf
Embla Medical | Össur

Kranabílstjóri
Steypustöðin