Eimskip
Eimskip
Eimskip

Sumarstörf á Selfossi

Við leitum að þjónustulunduðum og ábyrgum bílstjórum í sumarstörf á starfsstöð félagsins á Selfossi.

Vinnutími er frá kl. 8-16 á virkum dögum, en möguleiki á yfirvinnu á álagspunktum þegar svo ber undir.

Hjá Eimskip á Suðurlandi er nýlegur floti flutningabíla sem er vel viðhaldið og allur aðbúnaður til fyrirmyndar.

Eimskip leggur áherslu á jafnrétti, heilsu og vellíðan starfsfólks, og leitast eftir því að hafa vinnuumhverfið sem öruggast og heilsusamlegast.

Við hvetjum öll kyn til að sækja um.

Meiraprófsbílstjóri

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Akstur flutningabíla, lestun og losun
  • Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
  • Önnur tilfallandi störf

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Meirapróf (CE) er skilyrði
  • Lyftararéttindi (J) er kostur
  • ADR réttindi er kostur
  • Góð íslenskukunnátta æskileg
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Framúrskarandi þjónustulund og jákvæðni
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

Fríðindi í starfi

  • Samgöngustyrkur
  • Heitur matur í hádeginu

Bílstjóri á sendibíl

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Útkeyrsla sendinga á afgreiðslustaði eða í heimkeyrslu
  • Flokkun sendinga
  • Lestun og losun
  • Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
  • Önnur tilfallandi störf

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Bílpróf
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Þjónustulund og góð samskiptahæfni

Fríðindi í starfi

  • Samgöngustyrkur
  • Heitur matur í hádeginu

Nánari upplýsingar um störfin veitir Stefán Magnússon, svæðisstjóri, [email protected] eða í síma 660 2515.

Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2026.

Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.

Advertisement published3. February 2026
Application deadline17. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Háheiði 8, 800 Selfoss
Type of work
Professions
Job Tags