

Stuðningsfulltrúi óskast í Skammtímadvöl Árlandi 9
Skammtímadvöl Árland 9 leitar að metnaðarfullum og jákvæðum stuðningsfulltrúum til starfa með fötluðum börnum og ungmennum. Við leitum að fólki sem hefur áhuga á að vinna með börnum og ungmennum og vill taka þátt í að skapa þeim öruggt, hlýlegt og styðjandi umhverfi.
Stuðningsfulltrúar starfa samkvæmt stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks með það að markmiði að efla færni, auka sjálfstæði, styrkja jákvæða sjálfsmynd og stuðla að auknum lífsgæðum.
Skammtímadvölin í Árlandi hlaut á síðasta ári viðurkenningar í könnuninni Stofnun ársins sem fyrirmyndarstarfsstaður og hástökkvari ársins. Einnig lenti starfsstaðurinn í 3. sæti í flokki millistórra starfsstaða.
Um er að ræða tímbunda eða ótímabundna stöðu í 50–80% starfshlutfalli. Unnið er á dag-, kvöld-, nætur- og helgarvöktum aðra hvora helgi. Börnin eru yfirleitt í skóla og frístundastarfi á virkum dögum og því eru aðeins morgun- og kvöldvaktir á þeim tíma. Æskilegt er að umsækjendur geti sinnt öllum tegundum vakta.
- Styðja börn og ungmenni við athafnir daglegs lífs, heimilishald og sjálfshjálp.
- Sinna umönnun, fylgjast með andlegri og líkamlegri líðan og veita aðstoð varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum.
- Styðja börn og ungmenni til virkrar þátttöku í samfélaginu, meðal annars með því að efla félagstengsl og taka þátt í afþreyingu, menningar- og íþróttastarfi.
- Framfylgja einstaklingsáætlunum í samráði við börn, ungmenni og aðstandendur eftir því sem við á.
- Skrá og meðhöndla upplýsingar samkvæmt verklagi starfsstaðarins.
- Taka þátt í fundum og teymisvinnu.
- Sinna öðrum verkefnum samkvæmt ákvörðun yfirmanns.
- Reynsla af starfi með börnum, ungmennum eða fötluðu fólki er æskileg.
- Menntun eða nám sem nýtist í starfi er kostur.
- Mjög góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf.
- Þolinmæði og lausnamiðuð nálgun í krefjandi aðstæðum.
- Frumkvæði, yfirvegun og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Gilt bílpróf.
- Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
- Íslenskukunnátta að lágmarki B1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
- Styttri vinnuvika
- Samgöngu- og heilsuræktarstyrkir
- Sund- og menningarkort
Icelandic















