Fellaskóli
Fellaskóli
Fellaskóli

Stuðningsfulltrúi i

Í skemmtilegan, spennandi og fjölbreyttan starfsmannahóp vantar okkur stuðningsfulltrúa. Það er gaman að vinna í Fellaskóla.

Í Fellaskóla er fjölbreyttur og hæfileikaríkur nemendahópur. Flestir nemendanna tala fleiri en eitt tungumál og tengjast fjölmörgum löndum og menningarsvæðum. Með nemendum starfar öflugur hópur starfsfólks. Skólastarfið einkennist af jákvæðum skólabrag, samvinnu kennara sem miðar að því að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda, styrkja samskipti innan nemendahópsins og skapa metnaðarfullt námsumhverfi án aðgreiningar þar sem nemendur geta látið drauma sína rætast.

Í Fellaskóla er sérdeild fyrir nemendur með einhverfu. Við starfrækjum einnig frístundaheimilið Vinafell fyrir nemendur í 1. og 2. bekk.

Stuðningsfulltrúi starfar náið með kennurum, þroskaþjálfum og öðrum stuðningsfulltrúum. Næsti yfirmaður er aðstoðarskólastjóri og eða deildarstjóri sérdeildar.

Fellaskóli er skóli án aðgreiningar. Mikil áhersla er á læsi í yngstu árgöngunum og við vinnum náið með leikskólum hverfisins til að efla málþroska nemenda.

Fellaskóli er símalaus skóli, sem þýðir að nemendur nota ekki síma á skólatíma.

Við bjóðum upp á skemmtilegt starfsumhverfi, flottan starfsmannahóp og rík tækifæri til að þróast í starfi.

Um er að ræða 50-80% starf með möguleika á fullu starfi með því að vinna einnig í frístundaheimilinu Vinafell. Starfið er laust frá 24. ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að aðstoða nemanda / nemendur við þátttöku í skóla og athafnir daglegs lífs í skóla
  • Að aðstoða nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámskrá/ einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara og eða þroskaþjálfa
  • Að styðja nemendur í félagslegum samskiptum í skóla
  • Að fylgja nemendum í skóla, í frímínútum og í vettvangsferðum
  • Samskipti og samstarf við börn, foreldra, forráðamenn og starfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Áhugi á að starfa með börnum
  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Færni í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta (B1)
  • Kunnátta í erlendu tungumáli er kostur
Advertisement published21. July 2026
Application deadline3. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Norðurfell 17-19 17R, 111 Reykjavík
Type of work
Suitable for
Professions
Job Tags