

Starfsmenn óskast í stoðþjónustu við fötluð börn
Velferðar- og mannréttindasvið Akraneskaupstaðar óskar eftir starfsfólki í stoðþjónustu við fötluð börn. Um er að ræða störf í tímavinnu eða hlutastarf. Vinnutími er sveigjanlegur, og getur verið allt frá 07:45-10 á morgnanna, eftir kl. 14 á virkum dögum og/eða um helgar.
Vinnan felst í að veita aðstoð við flestar athafnir daglegs lífs og veita stuðning og tækifæri til félagslegrar þátttöku.
Starfsfólk þarf að geta unnið sjálfstætt en fær leiðsögn og stuðning frá foreldrum barnsins og ráðgjafaþroskaþjálfa velferðar- og mannréttindasviðs eftir þörfum.
Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
Jákvæðni og frumkvæði í starfi
Sjálfstæð vinnubrögð
Viðkomandi þarf að vera stundvís og sveigjanlegur
Að virðing sé höfð að leiðarljósi í samskiptum
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Akraneskaupstaðar
Nauðsynlegt er að viðkomandi tali og skilji íslensku
Reynsla af störfum með fötluðum æskileg, háskólamenntun kostur en ekki nauðsynleg
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og leikni við að bregðast við óvæntum aðstæðum.
Starfið er tilvalið með skóla og/eða hlutastarfi.
Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga annars vegar við Verkalýðsfélag Akraness eða Sameyki hinsvegar.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Þ. Sturlaugsdóttir verkefnastjóri farsæls frístundastarfs, [email protected]












