
Klettur - sala og þjónusta ehf
Saga Kletts og forvera félagsins nær aftur til 1947 og er því óhætt að segja að félagið byggi á traustum grunni sérhæfðrar þekkingar og reynslu. Árið 2010 markaði nýtt upphaf en þá hófst starfsemi Kletts sem tók yfir allan rekstur vélasviðs Heklu. Allar götur síðan hefur Klettur verið leiðandi í sölu og þjónustu sem nær yfir breiða línu vinnuvéla, aflvéla, rafstöðva, lyftara, rafgeyma, hleðslukrana, hjólbarða, vöruflutninga- og hópferðabíla, gíra og skrúfubúnaðar. Klettur býður einnig upp á ýmsan hliðarbúnað og fylgihluti frá þekktum vörumerkjum.
Helstu vörumerki félagsins eru Caterpillar vinnuvélar, aflvélar, rafstöðvar og lyftarar, Perkins aflvélar og rafstöðvar, Scania vöruflutninga- og hópferðabifreiðar, Scania aflvélar og rafstöðvar, Goodyear, Dunlop, Sava, Fulda, og Maxam hjólbarðar, Ingersoll Rand loftpressur, Mitsubishi gufuaflstúrbínur, ZF gírar, Hiab hleðslukaranar og gámakrókar, Scana Volda skrúfu- og gírbúnaður, Ausa vinnuvélar, Multione liðléttingar, Hubtex lyftarar, Hawker neyslurafgeymar, Langendorf vagnar og pallar og Larue snjóblásarar. Félagið hefur starfað í marga áratugi með helstu birgjum sínum og er meðal elstu umboðsaðila þeirra vörumerkja í Evrópu.
Félagið og starfsmenn leggja metnað sinn í að vera leiðandi í sölu og þjónustu á þeim mörkuðum sem félagið vinnur á og að þær vörur og þjónusta sem boðið er uppá hjálpi viðskiptavinum Kletts að ná sem bestum árangri.

Starfsmaður á lager/verslun Hafnarfirði
Leitað er að aðila til að ganga til liðs við öflugt teymi í varahlutaverslun Kletts í Hafnarfirði. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í fyrirmyndaraðstöðu. Um framtíðarstarf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Tiltekt og afgreiðsla á pöntunum
• Móttaka og frágangur á vörum
• Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
• Akstur með vörur og afhending til viðskiptavina
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
• Reynsla af lagerstörfum er kostur
• Bílpróf er skilyrði
• Lyftarapróf er kostur
• Góð íslenskukunnátta bæði í tali og riti er skilyrði
• Góð enskukunnátta í tali
• Nákvæmni, stundvísi og góð samstarfs- og samskiptahæfni
Fríðindi í starfi
• Niðurgreiddur matur.
• Sterkt og virkt starfsmannafélag.
• Íþróttastyrkur.
• Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins.
Advertisement published24. April 2026
Application deadline11. May 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Einhella 1, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
Customer checkoutStockroom work
Professions
Job Tags
Other jobs (7)

Klettur - Viðgerðarmaður í loftlausnum
Klettur - sala og þjónusta ehf

Vélfræðingur/rafvirki vélaverkstæði CAT
Klettur - sala og þjónusta ehf

Klettur - Vélvirki á vélaverkstæði CAT
Klettur - sala og þjónusta ehf

Vélvirki/Vélstjóri Akureyri
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki - Akureyri
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði - Reykjavík
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði Hafnarfirði
Klettur - sala og þjónusta ehf
Similar jobs (12)

Starfsmaður í móttöku þurr- og kælivöru í vöruhúsi
Garri

Hlutastarf 18+ ára, áfyllingar og tiltekt í verslun
BAUHAUS slhf.

Starfsmaður í vöruhúsum og dreifingu
Nói Síríus

Lagerstjóri Kvik innréttinga
Kvik

Undirbúningur blóma og akstur á sölustaði
Blómstra

Sölufulltrúi í Icewear Hveragerði
ICEWEAR

Lagerstarfsmaður
Íslyft / Steinbock þjónustan ehf

Starfmaður í afgreiðslu, hlutastarf
Sassy

Kjörbúðin Eskifirði sumarstarf
Kjörbúðin

Verslunarstjóri - Prís
Prís

Vöruhús Fagkaupa óskar eftir starfsfólki
Fagkaup þjónustudeild

Sölu- og þjónustufulltrúar í verslun Símans í Ármúla
Síminn