

Starfsmaður á afgreiðslukassa og þjónustuborði - BYKO Grandi
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til liðs við okkur í starf á afgreiðslukössum og þjónustuborði í verslun okkar BYKO Granda. Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita af þér.
Vinnutími er alla virka daga, kl. 09 – 17 og 10 – 18
Við leitum að einstaklingi með:
- Reynsla af þjónustustörfum, kostur
- Ríka þjónustulund
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Íslenskukunnáttu
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Afgreiðsla og þjónusta á þjónustuborði, afgreiðslukassa og sjálfsafgreiðslu
- Önnur tilfallandi verkefni
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavinar í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Karl Már Lárusson, verslunarstjóri ([email protected])












