Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)

Starfsfólk í eldhús og býtibúr á nýja skammtímadeild á Hlévangi í Reykjanesbæ

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða jákvæða og þjónustulundaða einstaklinga í eldhús og býtibúr á Hlévangi í Reykjanesbæ.

Hlévangur er ný deild innan HSS sem áætlað er að opni á seinni hluta árs 2026. Deildin verður 24 rýma skammtímadeild fyrir einstaklinga sem hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu.

Um er að ræða vaktavinnu. Störfin eru laus frá 1. september 2026 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoð við máltíðir skjólstæðinga

  • Aðstoð við matargerð og skömmtun

  • Aðstoð við pantanir og frágang á vörum

  • Uppvask og þrif í eldhúsi og býtibúri

  • Önnur tilfallandi störf

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur

  • Snyrtimennska

  • Sjálfstæði, skipulögð og öguð vinnubrögð

  • Góð samskiptahæfni

  • Þjónustulund og jákvæðni

  • Gott vald á íslensku

  • Lágmarksaldur er 18 ár

Advertisement published10. June 2026
Application deadline26. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Basic skills
EnglishEnglish
Required
Basic skills
Location
Hlévangur, 230 Reykjanesbær
Type of work
Professions
Job Tags