Landhelgisgæsla Íslands
Landhelgisgæsla Íslands

Starf í stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli

Hefur þú áhuga á að starfa í lifandi og fjölbreyttu starfsumhverfi þar sem góð samskipti, útsjónarsemi og greiningarhæfni eru lykilþættir?

Landhelgisgæsla Íslands óskar eftir að bæta drífandi liðsfélögum við teymið í stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Um fullt starf er að ræða og munu viðkomandi einstaklingar vinna dagvinnu meðan á þjálfun og reynslutíma stendur sem er allt að 24 mánaða tímabil. Að því loknu verða þau sem standast hæfnismat ráðin og gert ráð fyrir að vaktavinna geti hafist. Kostur er ef viðkomandi býr á Suðurnesjum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Loftrýmiseftirlit, eftirlit með umferð á hafi og stuðningur við loftrýmisgæslu
  • Samskipti við stjórnstöðvar Atlantshafsbandalagsins
  • Eftirlit með fjargæslukerfum
  • Gagnaöflun og upplýsingamiðlun
  • Skýrslugerð og greining gagna
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Nám sem nýtist í starfi
  • Áhugi og geta til að starfa í fjölbreyttu tækniumhverfi
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð greiningarhæfni og lausnarmiðuð hugsun
  • Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Sjálfstæði, nákvæmni og agi í vinnubrögðum
  • Geta til að stunda vaktavinnu og vinna undir álagi
  • Reglusemi, snyrtimennska og stundvísi
  • Mjög góð enskukunnátta í ræðu og riti
  • Almenn ökuréttindi


Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skal starfsfólk uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.

Advertisement published10. June 2026
Application deadline29. June 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.NeatnessPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags