

Starf fyrir par – Þrif & þjónusta í lúxus gistingu með húsnæði
Einstakt tækifæri fyrir par: vinna og búa í hjarta íslenskrar náttúru í fallegu og friðsælu umhverfi. Fullbúin íbúð á staðnum fylgir starfinu.
Við hjá ÖÖD Hekla Horizon leitum að metnaðarfullu og samstilltu pari til starfa við rekstur okkar á einstökum gististað við Hellu.
Á svæðinu eru:
7 speglahús í útleigu
1 lounge / samkomuhús
1 þjónustuhús
5 gufur og 3 heitir pottar
Æskilegt er að viðkomandi/par geti hafið störf í lok Apríl eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Um er að ræða fjölbreytt og sjálfstætt starf fyrir par sem vill taka þátt í daglegum rekstri á einstökum lúxus gististað við Hellu.
Starfið snýst um að tryggja hágæða þjónustu og framúrskarandi hreinlæti, þannig að hver gestur upplifi dvölina sem einstaka og eftirminnilega í rólegu og fallegu umhverfi.
🔹 Helstu verkefni og ábyrgð
Þrif og frágangur á speglahúsum með áherslu á gæði og smáatriði
Þjónusta við gesti og aðstoð eftir þörfum
Umsjón með sameiginlegum svæðum (lounge og þjónustuhúsi)
Umhirða á aðstöðu, þar á meðal sánum og heitum pottum, með áherslu á hreinlæti og gæði
Eftirlit með að öll aðstaða sé snyrtileg, vel við haldið og tilbúin fyrir næstu gesti
Samvinna og verkaskipting innan pars til að tryggja skilvirkan rekstur
Ert samviskusöm/samviskusamur og hefur auga fyrir smáatriðum
Getur unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði
Hefur jákvætt viðmót og góða þjónustulund
Hefur gilt ökuskírteini
Reynsla af þrifum, helst í hótel- eða gistirekstri, er mikill kostur
-
Möguleiki á búsetu á staðnum í fullbúinni íbúð (sérstaklega hentugt fyrir par)
-
Vinna í einstöku náttúruumhverfi fjarri ys og þys
-
Tækifæri til að vera hluti af metnaðarfullu og vaxandi verkefni
English










