

Sölustjóri - Founding Sales Executive (Iceland)
Um Treyst
Treyst er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem býður upp á spennandi gervigreindarlausn til að aðstoða við að innleiða og vakta löggjöf. Viðskiptavinir okkar eru ráðuneyti, opinberar stofnanir, leiðandi lögfræðistofur og stór fyrirtæki í EES/ESB svæði þar meðal EFTA Secretariat í Brussel, Landsvirkjun, Sjúkratryggingar Rarik og Isavia. Við erum 13 manna teymi og vinnum mjög þétt saman.
Við erum með höfuðstöðvar í Reykjavík og erum að stækka hratt inn á norska og ESB-markaðnum.
Hlutverk
Sem sölustjóri og fyrsti sölufulltrúi Treyst muntu eiga alla íslensku sölupípuna frá fyrstu samskiptum að undirrituðum samningum. Þú munt stjórna samböndum við núverandi viðskiptavini, kynna vöruna og loka nýjum samningum. Þú munt vinna með framkvæmdastjóranum en líka sjálfstætt og bera beina ábyrgð á tekjuvexti á Íslandi.
- Bera ábyrgð á íslensku sölupípunni frá fyrstu samskiptum að undirrituðum samningum
- Kynna vöruna
- Stjórna og efla sambönd við núverandi viðskiptavini
- Annast endurnýjun og uppsölu
- Finna nýja viðskiptamöguleika og þróa aðferðir við sölu
- Halda sölupípunni uppfærðri
- Tryggja innleiðingu nýrra viðskiptavina
- Mæta á viðeigandi viðburði til að byggja tengslanet
- Gefa skýrslu um stöðu á sölupípu og tekjuspá reglulega til forstjóra
Við leitum að
Nauðsynlegt:
- Víðtæk B2B sölureynsla og reynsla af því að að loka sölusamningum
- Framúrskarandi íslenska og enska er nauðsynleg
- Fagleg samskipti— þú munt selja til lögfræðinga, starfsmanna og stjórnenda stofnana og stórfyrirtækja
- Skipulag og sjálfstæði — þú stjórnar þinni eigin sölupípu án þess að vera undir eftirliti
- CRM reynsla (við notum HubSpot)
- Viðskiptalegt innsæi — þú veist hvernig á að kanna hæfi, ýta á eftir og ljúka sölu
Gagnlegt:
- Reynsla af sölu til stjórnvalda, opinberra stofnana eða fagþjónustu
- Bakgrunnur í lögfræðilegri tækni, RegTech, SaaS eða reglufylgni
- Skilningur á ESB-löggjöf og EES ferlum
- Núverandi net í íslenskum stjórnvöldum, lögfræði- eða orkugeiranum
Þú þarft ekki að vera lögfræðingur. Þú þarft að skilja vandann sem við leysum og geta miðlað ávinningnum af notkun Treyst til viðskiptavina.
- Samkeppnisfær grunnlaun
- Frammistöðutengd þóknun á lokuðum samningum
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnufyrirkomulag
- Frábærir vinnufélagar
- Framúrskarandi vinnuaðstaða
- Spennandi verkefni
Hægt er að hafa samband hér ef spurningar vakna: [email protected]
Icelandic
English










