
Freyja
Freyja ehf. er elsta starfandi sælgætisgerð á Íslandi, stofnuð umbrotaárið 1918. Freyja er sælgætisgerð Íslendinga og framleiðir söguleg sælgæti undir nokkrum af ástsælustu vörumerkjum landsins sem eru Rís, Draumur, Djúpur, Mix og Freyju súkkulaði. Eftir meira en heila öld af sælgætisframleiðslu endurspeglar saga og andi Freyju þjóðaranda Íslendinga sem einkennist af íslenskri bjartsýni.
Bragð og gæði eru höfð í hávegum hjá Freyju, það er öllum fimmtíu starfsmönnum félagsins kappsmál að framleiða og markaðssetja sælgæti sem kallar fram bragðgóðar íslenskar minningar. Hvort sem það er fyrir íslenskan markað eða til útflutnings þar sem sælgætið frá Freyju er í stöðugri sókn.
Nýsköpun og vöruþróun Freyju er ætluð að stuðla að varanlegum vexti og er það markmið að vörunýjungar verði hluti af fleiri gleðistundum, skemmtilegum hefðum og góðum minningum hjá þjóðinni.

Sölufulltrúi - fullt starf
Sælgætisgerðin Freyja óskar eftir metnaðarfullum sölufulltrúa sem vill taka þátt í að byggja upp sterkt vörumerki og tryggja framúrskarandi þjónustu í verslunum okkar.
Ef þú nýtur þess að vinna með fólki, byggja upp tengsl og sjá árangur þinnar vinnu í beinni, þá gætir þú verið manneskjan sem við leitum að.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala, áfylling og þjónusta í verslunum
- Ábyrgð á vöruvali og framsetningu í verslunum
- Viðhald viðskiptasambanda
- Öflun nýrra viðskiptasambanda
- Eftirfylgni söluherferða og tilboða
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sambærilegum sölustörfum mikill kostur
- Áreiðanleiki, nákvæmni og stundvísi
- Góð samskiptahæfni, þjónustulund og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Almenn ökuréttindi
Advertisement published9. June 2026
Application deadline28. June 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Kársnesbraut 104, 200 Kópavogur
Type of work
Skills
Driver's license (B)AmbitionIndependenceSalesPunctualCustomer service
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Starfsmaður óskast í hlutastarf hjá Rammastúdíó
Innrömmun Rammastúdíó

Vátrygginga- og lífeyrisráðgjafi hjá Bayern Líf á Akureyri
Bayern líf

Sölustjóri
Hagar miðlar

Hársnyrtir sölustarf - hlutastarf
ATC

Sölustjóri
Pure North

Sölufulltrúi í framtíðarstarf
Gæðabakstur

Leitum af öflugum heilsuráðgjafa
The House of Beauty

Afgreiðslustarf í skóverslun í miðbænum
Fló ehf.

KRINGLAN - HELGARVAKTIR
ILSE JACOBSEN Hornbæk

Sölustjóri (Sales Manager)
Wolt

Rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar í Hafnarfirði
Húsasmiðjan

Sölumaður - Prívat lúxusferðir
Deluxe Iceland