BEWI
BEWI

Sölufulltrúi

BEWI Íslandi leitar að öflugum og metnaðarfullum sölufulltrúa sem vill taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og vexti fyrirtækisins.

Við leitum að einstaklingi sem hefur gaman af samskiptum, byggir auðveldlega upp traust viðskiptasambönd og hefur auga fyrir nýjum viðskiptatækifærum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samskipti og uppbygging viðskiptasambanda við núverandi og nýja viðskiptavini
  • Markviss leit að nýjum viðskiptatækifærum
  • Kynna vörur og lausnir BEWI og vinna tilboð og verkefni áfram
  • Greina þarfir viðskiptavina og finna réttu lausnirnar
  • Fylgja eftir tækifærum og halda utan um þau í CRM
  • Vinna náið með söluteyminu og öðrum deildum innan fyrirtækisins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Metnaðarfullum, jákvæðum og drífandi einstaklingi sem hefur gaman af fólki, samskiptum og sölu
  • Reynsla af sölu og þjónustu í sjávarútvegi, matvælaframleiðslu eða sambærilegu er kostur
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Skipulagshæfni og góð eftirfylgni
  • Góð samskiptahæfni og geta til að byggja upp traust viðskiptasambönd
  • Forvitni og skilningur á þörfum viðskiptavina
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Gott vald á íslensku og ensku
Advertisement published10. September 2026
Application deadline22. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Cuxhavengata 1, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags