Vodafone og Stöð 2
Vodafone og Stöð 2
Vodafone og Stöð 2

Sölu- og þjónustufulltrúi - Þjónustuver

Ert þú með framúrskarandi þjónustulund, finnst gaman að takast á við krefjandi verkefni og langar að vinna á lifandi vinnustað með skemmtilegu fólki? Þá gætum við í þjónustuveri Vodafone og Stöðvar 2 verið að leita að þér! Í starfinu felst hverskonar aðstoð við viðskiptavini okkar á sviði reikninga og tækni en einnig sala og ráðgjöf.

Vinnutími er alla virka daga frá 9-17, með möguleika á aukavöktum. Um er að ræða fullt starf til framtíðar.

Hæfniskröfur:

  • Framúrskarandi þjónustulund
  • Jákvæðni
  • Frumkvæði
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og vandvirkni
  • Metnaður til að ná árangri
  • Stundvísi
  • Áhugi á tækni
  • Íslensku kunnátta

Hvað höfum við að bjóða þér?

  • Frábæra vinnufélaga
  • Framúrskarandi vinnuaðstöðu
  • Spennandi verkefni
  • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
  • Möguleika á starfsþróun
  • Mötuneyti á heimsmælikvarða
  • Internet- og farsímaáskrift auk sérkjara af sjónvarpsþjónustu
  • Árlegan heilsustyrk
  • Árlegan símtækjastyrk
  • Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
  • Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu

Við hvetjum áhugasöm af öllum kynjum til að sækja um í gegnum ráðningavefinn okkar. Umsóknarfrestur er til og með 15.júní 2025 nk.

Fyrir nánari upplýsingar má senda póst á [email protected]

Hver erum við?

Sýn er leiðandi fyrirtæki á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Undir Sýn heyra vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Vísir, Bylgjan, FM957, X-977, Stöð 2 Sport og Já.is. Hjá okkur starfar samheldinn hópur fólks sem leitast stöðugt við að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu.

Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.

Advertisement published3. June 2025
Application deadline15. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags