
Smiður óskast
Starfslýsing
Við hjá Stokktré ehf leitum að öflugum starfsmanni í fullt starf við fjölbreytt byggingarverkefni. Um er að ræða almennt byggingarstarf á byggingarsvæðum, bæði nýsmíði og viðhald. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjast sjálfstæðra vinnubragða, samvinnu og áreiðanleika.
Helstu verkefni:
-
Almenn smíðavinna á verkstað
-
Uppsetning og skipti á gluggum og hurðum
-
Þakviðgerðir og -skipti
-
Viðhald og lagfæringar á fasteignum
-
Aðstoð við önnur tilfallandi verkefni á verkstað
Hæfnikröfur:
-
Iðnmenntun sem trésmiður eða sambærileg menntun er kostur
-
Reynslu af smíðavinnu má vega upp á móti menntun
-
Færni í almennum verkfærum og handverkfærum
-
Sjálfstæð og ábyrg vinnubrögð
-
Góð samskiptahæfni og vilji til að vinna í teymi
-
Ökuréttindi (B) eru skilyrði
Við bjóðum:
-
Áhugavert og fjölbreytt starf í ört vaxandi fyrirtæki
-
Góðan starfsanda og traust teymi
-
Samkeppnishæf laun samkvæmt kjarasamningum og reynslu
Meðmæla er krafist.
Nánari upplýsingar um starfið eru veittar hér á Alfreð eða á [email protected]












