Leikskólinn Skýjaborg
Leikskólinn Skýjaborg
Leikskólinn Skýjaborg

Skýjaborg auglýsir eftir deildarstjóra

Leikskólinn Skýjaborg óskar eftir að ráða deildarstjóra í 100% ótímabundna stöðu frá 10. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.

Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Við erum í spennandi verkefni að stækka við okkur og erum að opna auka leikrými í færanlegu húsnæði á leikskólalóðinni og með því fjölga börnum. Í Skýjaborg er lögð áhersla á umhverfismennt, útinám, snemmtæki íhlutun í máli og læsi og sjálfsprottinn leik. Skólinn er grænfánaskóli og gildi skólans eru: Vellíðan, virðing, metnaður og samvinna.

Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir.

Heimasíða leikskólans er: https://skoli.hvalfjardarsveit.is/

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra.

·       Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni.

·       Sér um foreldrasamstarf á deildinni.

·       Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.

·       Ath. Önnur deildin er með börn á aldrinum 1-3 ára og hin deildin er með börn á aldrinum 3-6 ára. Deildarstjóri er ekki ráðin við aðra hvora deildina, heldur gæti starfið flust á milli deilda.

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Leyfisbréf til kennslu*

·       Reynsla af starfi á leikskólastigi

·       Góð íslenskukunnátta

·       Góð samskiptahæfni

·       Góðir skipulagshæfileikar

·       Góð tölvukunnátta

*Ef ekki fæst til starfa leikskólakennari (með leyfisbréf til kennslu) verður horft til menntunar og reynslu.

Fríðindi í starfi

·       35 klst. vinnuvika / 7 klst. vinnudagur. Afleysing er í húsi fyrir styttingunni.

·       Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30. 

Advertisement published3. June 2026
Application deadline17. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Innrimelur 1, 301 Akranes
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)
Professions
Job Tags