Þjóðskjalasafn Íslands
Þjóðskjalasafn Íslands

Skjalavörður í gagnaskil og eftirlit

Þjóðskjalasafn Íslands óskar eftir að ráða skjalavörð til starfa á skjalastjórnar- og skjalavörslusviði safnsins. Starfið er á fageiningu gagnaskila og eftirlits, og um fullt starf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ráðgjöf og eftirlit með skjalavörslu og skjalastjórn til afhendingarskyldra aðila
  • Vinnsla tilkynninga á rafrænum gagnasöfnum
  • Þáttaka í öðrum verkefnum safnsins eftir þörfum og atvikum

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • BA, BS eða sambærileg prófgráða í tölvunarfræði, upplýsingafræði, sagnfræði, opinberri stjórnsýslu eða sambærilegum greinum skilyrði
  • Viðbótarmenntun í skjalfræði er kostur
  • Þekking og/eða reynsla af skjalavörslu og skjalastjórn afhendingarskyldra aðila er æskileg
  • Þekking á innviðum rafrænna gagnasafna og eðli gagnasöfnunar er æskileg
  • Skipulögð vinnubrögð, færni í að greina aðalatriði og til að leysa flókin úrlausnarefni nauðsynleg
  • Góð kunnátta í algengum notendaforritum (t.d. Office 365) er nauðsynleg
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti nauðsynleg
  • Mjög góð samstarfshæfni, rík þjónustulund og sveigjanleiki í samskiptum

Um Þjóðskjalasafn Íslands
Þjóðskjalasafn Íslands er stjórnsýslu- og menningarstofnun sem er framkvæmdaraðili opinberrar skjalavörslu og skjalastjórnar ásamt því að gegna hlutverki opinbers skjalasafns. Um 50 manns starfa hjá Þjóðskjalasafni. Um þessar mundir standa yfir miklar breytingar í starfseminni og því um spennandi tækifæri að ræða fyrir kraftmikinn aðila. Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vefnum skjalasafn.is.

Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku), þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við viðkomandi stéttarfélag. Athygli er vakin á því að umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Þjóðskjalasafns Íslands við ráðningu í starfið.

Nánari upplýsingar veitir Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.

Advertisement published27. March 2026
Application deadline12. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Laugavegur 162, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags