

Skjala- og gæðastjóri hjá Þjóðminjasafni Íslands
Þjóðminjasafn Íslands leitar að öflugum einstaklingi í starf skjala- og gæðastjóra Þjóðminjasafnsins.
Starfið krefst áræðni og haldgóðrar reynslu af skjalastjórnun auk hæfni til að móta framtíðarsýn í skjala-, gæða- og bókasafnsmálum, en Þjóðminjasafnið rekur sérfræðibókasafn á starfsstöðvum sínum. Í starfinu felst að halda utanum innleiðingu nýrra lausna og verklags ásamt handleiðslu samstarfsfólks með skilvirkni að leiðarljósi.
Skjala- og gæðastjóri starfar í náinni samvinnu við stjórnendur og starfsfólk þvert á starfssvið stofnunarinnar. Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf þar sem reynir á öguð vinnubrögð, samskiptahæfni og fagmennsku.
Skjala og gæðastjóri heyrir undir fjármálastjóra og er aðalstarfsstöðin á Suðurgötu en einnig í Vesturvör Kópavogi og á Tjarnarvöllum í Hafnarfirði.
Vinnustaðurinn okkar er fjölbreyttur og lifandi, þar sem sköpun, fræðsla og varðveisla menningararfsins fléttast saman í hvetjandi og framsæknu umhverfi.
- Ábyrgð á skjalamálum stofnunarinnar, mótun verklags og þróun skjalastefnu til framtíðar
- Leiða þróun og umbætur á sviði skala- og gæðamála
- Ráðgjöf og fræðsla til starfsfólks um skalavistun og bætt verklag
- Ábyrgð á að farið sé eftir lögum og reglum um skjalavörslu og skylduskil opinberra stofnunar til Þjóðskjalasafns Íslands
- Umsjón með sérbókasafni Þjóðminjasafnsins (afgreiðsla, skráning, tímaritahald, skipulag safnkosts)
- Ábyrgð á innleiðingu gæðastefnu og stjórnun verklags
- Ábyrgð á ritstjórn gæðahandbókar og uppfærslum í samstarfi við starfsfólk og stjórnendur
- Frumkvæði í þróun og innleiðingu nýjunga á verklagi við stafræna þróun skjala- og gæðamála auk sérbókasafns
- Háskólapróf (BA/BS að lágmarki) sem nýtist í starfi er skilyrði
- Reynsla í skjalastjórnun innan opinberrar stjórnsýslu og meðferð stjórnsýslumála er kostur
- Þekking og reynsla af skjalavistunarkerfum, gæðakerfum og gæðastjórnun
- Þekking og reynsla af stafrænu umbreytingarferli og þróun í gæða-, skjala- og upplýsingamálum
- Ríkir skipulagshæfileikar og nákvæmni í vinnubrögðum
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og færni til að leiða umbætur
- Góð samskipta-og samstarfshæfni, jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
- Frumkvæði, metnaður og nákvæmni í starfi, áræðni og drifkraftur
- Færni í íslensku og ensku skilyrði
Icelandic
English





