Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Skipulagsfulltrúi í Borgarbyggð

Sveitarfélagið Borgarbyggð leitar að drífandi og metnaðarfullum skipulagsfulltrúa. Um er að ræða krefjandi og spennandi starf þar sem viðkomandi mun taka virkan þátt í mótun byggðar og þróun skipulagsmála.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og ábyrgð með skipulagsmálum og þeim verkefnum sem falla undir skipulagsfulltrúa skv. skipulagslögum.
  • Yfirferð á erindum sem berast til sveitarfélagsins.
  • Mat á landnotkun, hönnun umhverfis og þróun byggðar, ásamt þátttaka í stefnumótun.
  • Eftirlit í samræmi við gildandi skipulög, lög og reglur.
  • Starfsmaður skipulags- og byggingarnefndar, þar á meðal undirbúningur nefndarfunda og náið samstarf við formann nefndarinnar.
  • Samskipti ráðgjöf við hagsmunaaðila, hönnuði, ráðgjafa, stofnanir og kjörinna fulltrúa.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjandi skal uppfylla menntunar- og hæfniskröfur skv. 7.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skv. 2.5 kafla skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
  • Önnur háskólamenntun, svo sem arkitektúr, byggingarfræði eða önnur framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Reynsla af starfi tengdum skipulagsmálum og opinberri stjórnsýslu eru skilyrði.
  • Reynsla af verkefna- og teymisstjórnun og utanumhald verkefna.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni, lausnamiðuð hugsun og nákvæmni og hæfni í framsetningu efnis.
  • Góð tölvukunnátta og færni í helstu forritum tengdum skipulagsvinnu.
  • Þjónustulund, sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Þekking og hæfni í íslensku, bæði í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið

Launakjör eru samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Með umsókninni skal fylgja starfsferilsskrá og starfsleyfi ef við á. Umsókninni skal einnig fylgja kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

 Vinnutími: Dagvinna

Starfshlutfall: 100%.

Starfssvið: Skipulags- og umhverfissvið.

Umsóknafrestur er til og með 21.júlí n.k.

Nánari upplýsingar veitir Guðný Elíasdóttir sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Borgarbyggðar, netfang [email protected]

Advertisement published7. July 2026
Application deadline21. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Optional
Intermediate
Location
Digranesgata 2, 310 Borgarnes
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Public administrationPathCreated with Sketch.Planning
Work environment
Professions
Job Tags