Skammtímadvöl Leirvogstungu
Skammtímadvöl Leirvogstungu
Skammtímadvöl Leirvogstungu

Skammtímadvöl fyrir börn

Við í Skammtímadvöl fyrir börn í Mosfellsbæ óskum eftir að ráða öflugt og framsækið starfsfólk í teymið okkar. Við veitum börnum með flókinn og fjölþættan vanda einstaklingsmiðaða þjónustu með það að markmiði að auka félagslega þátttöku og bæta líðan barna. Starfsfólk vinnur eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar og hugmyndafræði um sjálfstætt líf sem og þjónustu - og starfsáætlunum.

Mikið er lagt upp úr úr góðri liðsheild og samvinnu á staðnum.
Um er að ræða sólarhringsþjónustu svo gengið er út frá því að starfsfólk vinni á fjölbreyttum vöktum.
Á virkum dögum eru einungis kvöld- og nætuvaktir og um helgar eru dag-, kvöld- og næturvaktir.

Ráðið er í starfið frá 1.september.

Við störfum skv. lögum um fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og skv. stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitafélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita þjónustunotendum einstaklingsmiðaðan stuðning við athafnir daglegs lífs 
  • Hvetja og styðja þjónustunotendur til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til þátttöku í samfélaginu
  • Veita þjónustunotendum félagsskap og taka þátt í skipulagi hvers dags
  • Stuðla að markvissu og skilvirku samstarfi við þjónustunotendur, aðstandendur, fagaðila og aðra þá sem koma að þjónustu við þjónustunotendur
  • Almenn heimilisstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks og reynsla af störfum með fötluðu fólki er mikill kostur
  • Góð þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Framtaksemi og samviskusemi
  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Bílpróf
Advertisement published1. July 2026
Application deadline29. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Quick learnerPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team work
Suitable for
Professions
Job Tags