Heilsuvernd Vífilsstaðir
Heilsuvernd Vífilsstaðir
Heilsuvernd Vífilsstaðir

Sjúkraþjálfari óskast til starfa

Heilsuvernd Vífilsstöðum óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara til starfa. Við leitum eftir einstaklingi sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og er tilbúin til að taka þátt í að byggja upp sterkt teymi á góðum vinnustað.

Heilsuvernd Vífilsstöðum er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Á Vífilsstöðum er sem stendur veitt þjónusta til aldraðra sem bíða eftir varanlegri búsetu á hjúkrunarheimili.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjálfun og meðferð einstaklinga
  • Skipulag hópþjálfunar
  • Fræðsla til skjólstæðinga
  • Vinna í þverfaglegu teymi
  • Þátttaka í þróun verkefna og þjónustum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Löggilt sjúkraþjálfarapróf og starfsleyfi landlæknis
  • Reynsla og/þekking á meðferð og greiningu stoðkerfissjúkraþjálfunar er kostur
  • Reynsla af starfi með öldruðum er kostur
  • Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til þess að vinna í þverfaglegu teymi
  • Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál
Advertisement published1. June 2026
Application deadline21. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
Type of work
Professions
Job Tags