Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Sjúkraþjálfari / íþróttafræðingur - Sóltún heilbrigðisþjónusta, Sóltúni í Reykjavík

Sóltún heilbrigðisþjónusta auglýsir eftir Sjúkraþjálfara eða Íþróttafræðingi

Við í Sóltúni leitum að metnaðarfullum og jákvæðum sjúkraþjálfara eða íþróttafræðingi til að ganga til liðs við okkar frábæra teymi. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf í hlýlegu og faglegu umhverfi þar sem vellíðan og virðing eru í fyrirrúmi. Starfið felur í sér þjálfun, hreyfingu og endurhæfingu íbúa með það að markmiði að efla færni, sjálfstæði og lífsgæði. Við leitum að einstaklingi með frumkvæði, góða samskiptahæfni og áhuga á að starfa í öflugu þverfaglegu teymi þar sem velferð íbúa er ætíð í forgangi. Um framtíðarstarf og 80% starfshlutfall er að ræða.

Staðsetning: Sóltúni 2, 105 Reykjavík.

Helstu verkefni

  • Mat á hreyfigetu og líkamlegri færni íbúa
  • Gerð og framkvæmd einstaklingsmiðaðra þjálfunaráætlana
  • Endurhæfing og viðhaldsþjálfun með áherslu á sjálfstæði og lífsgæði
  • Fallvarnir og ráðgjöf um hjálpartæki
  • Fræðsla og leiðbeiningar til starfsfólks og aðstandenda
  • Virk þátttaka í þverfaglegu samstarfi

Menntunar og hæfniskröfur

  • Löggilt íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari / íþróttafræðingur
  • Reynsla af öldrunarþjónustu er kostur, en ekki skilyrði
  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
  • Jákvætt viðmót og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hreint sakarvottorð er skilyrði

Starfskjör og fyrirkomulag

  • Launakjör skv. viðeigandi kjarasamningi og SFV.
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Íþróttastyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Fatapeningur
  • Hlýlegt og faglegt starfsumhverfi
  • Þverfaglegt samstarf og öflugt teymi

Um Sóltún heilbrigðisþjónustu

Sóltún heilbrigðisþjónusta er leiðandi þjónustuaðili á sviði velferðar- og öldrunarþjónustu á Íslandi. Markmið okkar er að auka velsæld og lífsgæði eldra fólks með fjölbreyttri og heildrænni heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á virðingu, sjálfstæði og stuðning í daglegu lífi.

Undir merkjum Sóltúns eru rekin hjúkrunarheimili í Reykjavík og Hafnarfirði, auk endurhæfingarþjónustu, dagdvalar og heimaþjónustu. Þjónustan er veitt af þverfaglegu teymi fagfólks sem vinnur saman að því að tryggja öryggi, vellíðan og gott líf íbúa og skjólstæðinga.

Hjá Sóltúni er lögð sérstök áhersla á nærandi samfélag þar sem umhyggja, fagmennska og jákvæð samskipti eru í fyrirrúmi. Starfsfólk er stærsta styrkleiki þjónustunnar og því er rík áhersla lögð á gott starfsumhverfi, samvinnu og tækifæri til starfsþróunar.

Advertisement published22. June 2026
Application deadline15. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Sóltún 2, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Sport ScientistPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Flexibility
Professions
Job Tags