
Víkurskóli
Í Víkurskóla er leitast við að búa nemendum hvetjandi námsumhverfi.
Áhersla er lögð á samstarf kennara og fjölbreytta kennsluhætti. Víkurskóli er heilsueflandi skóli og vinnur í anda Uppbyggingarstefnunnar, Uppeldis til ábyrgðar.
Víkurskóli er jafnframt einn af jarðvangsskólum Kötlu Geopark.
Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.
Skólinn hefur um árabil tekið þátt í fjölþjóðlegu samstarfi í gegnum Erasmus+.
Sérkennari
Víkurskóli, Vík í Mýrdal leitar að metnaðarfullum og drífandi sérkennara.
Starfinu fylgja bæði flutningsstyrkur og húsnæðishlunnindi.
Um 50% starf er að ræða með möguleika á hærra hlutfalli með almennri kennslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiðsögn og stuðningur við börn með sérþarfir
- Skipulag náms og kennslu samkvæmt einstaklingsnámskrá
- Samstarf við foreldra um nám og velferð nemenda
- Samstarf innan skólans að faglegum málefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Einlægur áhugi á að vinna með börnum og nálgast þau út frá ólíkum þörfum
- Góð færni í samskiptum og vilji til þátttöku í samstarfi og teymisvinnu
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Mjög góð íslenskukunnátta bæði í töluðu máli og rituðu (C1)
Fríðindi í starfi
Starfinu fylgja bæði flutningsstyrkur og húsnæðishlunnindi.
Advertisement published16. July 2026
Application deadline4. August 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Mánabraut 3, 870 Vík
Type of work
Skills
ProactiveTeacherHuman relationsTeam work
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (7)

Sérkennsla í Blásölum
Leikskólinn Blásalir

Sérkennari í Kársnesskóla
Kársnesskóli

Umsjónarkennari á miðstig í Kársnesskóla
Kársnesskóli

Sérkennsla/stuðningur
Leikskólinn Hraunborg

Sérkennari í Stekkjaskóla
Stekkjaskóli

Leikskólinn Akrar - starfsmaður í stuðning
Garðabær

Stuðningsfulltrúi með börnum með sérþarfir – starf sem skiptir máli
Arnarskóli