Gildi
Gildi

Sérfræðingur í vöruhúsi gagna og gagnavinnslu

Gildi-lífeyrissjóður leitar að metnaðarfullum einstaklingi til að taka þátt í stafrænni vegferð sjóðsins og vinna að krefjandi verkefnum innan upplýsingatæknisviðs. Næsti yfirmaður er forstöðumaður upplýsingatækni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun, uppbygging og viðhald á vöruhúsi gagna og gagnavinnslu.
  • Samþætting lausna.
  • Smíði og viðhald á skýrslum og mælaborðum.
  • Greining gagna.
  • Þátttaka í umbóta- og framþróunarverkefnum.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði, viðskiptafræði eða skyldum greinum.
  • Reynsla af sambærilegu starfi.
  • Góður skilningur á tölfræði og hæfni til að túlka gögn.
  • Breytingastjórnun með GIT.
  • Reynsla af fyrirspurnarmálum; SQL, og DAX.
  • Þekking á Python.
  • Þekking á vefþjónustusamskiptum s.s. REST API, OData og SOAP.
  • Metnaður og frumkvæði í starfi.
  • Hæfni í samskiptum, jákvæðni og þjónustulund.
  • Samviskusemi, áreiðanleiki, vandvirkni og ögun í vinnubrögðum.
  • Reynsla af MetaExtractor, TimeXtender, PowerBI og SSIS líkönum er kostur.
  • Góð íslensku- eða enskukunnátta.
Advertisement published3. June 2025
Application deadline15. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
EnglishEnglish
Required
Very good
Location
Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)