Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Sérfræðingur í sjálfbærri mannvirkjagerð

Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem leggur áherslu á öfluga miðlun upplýsinga, árangursríkt samstarf við hagaðila og nýsköpun á byggingarmarkaði?

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leitar að öflugu starfsfólki í teymi starfsumhverfis mannvirkjagerðar til að stuðla að betri innleiðingu byggingarregluverks og veita hagaðilum mannvirkjageirans stuðning til að þeir nái árangri við að uppfylla grunnkröfur um mannvirki. Þetta er gert með því að stuðla markvisst að aukinni þekkingu og rannsóknum ásamt því að vinna að fræðslu og að viðhalda virku samtali við hagaðila. Teymið vinnur einnig að samræmingu byggingareftirlits og minni kolefnislosun á íslenskum byggingamarkaði.

Fjölbreytt og krefjandi verkefni eru framundan við þróun á starfsumhverfi mannvirkjagerðar í takt við hlutverk og framtíðarsýn stofnunarinnar.

HMS óskar eftir að ráða sérfræðing í sjálfbærri mannvirkjagerð sem mun koma að verkefni fyrir Nordic Sustainable Construction, NSC.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í norrænu samstarfsverkefni og samskipti á sviði vistvænnar mannvirkjagerðar.
  • Styðja við þróun vistvænnar mannvirkjagerðar innan starfsemi HMS
  • Frumkvæði og þróun á samskiptum og samstarfi við ólíka hagaðila byggingariðnaðarins í tengslum við vistvæna mannvirkjagerð
  • Fræðslu- og kynningarstörf á sviði vistvænnar mannvirkjagerðar
  • Þátttaka í gerð leiðbeininga við regluverk á sviði vistvænnar mannvirkjagerðar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á byggingasviði, s.s. byggingafræði, tæknifræði, verkfræði eða arkitektúr er skilyrði
  • Nám í sjálfbærni er kostur
  • Reynsla af byggingaframkvæmdum og hönnun er kostur
  • Þekking og reynsla af lykilþáttum vistvænnar mannvirkjagerðar, t.d. í tengslum við lífsferilsgreiningar og hringrásarhagkerfið er kostur
  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvætt og lausnamiðað viðhorf
  • Gott vald á íslensku og ensku. Gott vald á norðurlandatungumáli er kostur
Advertisement published22. May 2025
Application deadline5. June 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Very good
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags