Travel Connect
Travel Connect
Travel Connect

Sérfræðingur í markaðsmálum og gervigreind

Við leitum að sérfræðingi í markaðsmálum og gervigreind sem hefur brennandi áhuga á efnissköpun, stafrænni markaðssetningu og nýrri tækni. Þú verður hluti af öflugu teymi Markaðsstofu sem vinnur þvert á fyrirtæki Travel Connect samstæðunnar. Hlutverk þitt verður meðal annars að greina, prófa og innleiða nýjar leiðir til að nýta gervigreind í markaðsstarfi.

Um er að ræða nýtt starf og mun nýr starfsmaður taka þátt í að móta hlutverkið og þróa það áfram í samstarfi við framkvæmdastjóra Markaðsstofu og annað starfsfólk teymisins. Ef þú tikkar í öll boxin og lítur á þetta sem spennandi tækifæri að þá viljum við gjarnan heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kanna möguleika erindreka (e. agentic AI) til að styðja við sjálfvirkni, efnissköpun, og annað markaðsstarf.
  • Taka þátt í stafrænum markaðsverkefnum, meðal annars á sviði SEO, GEO, AEO og markaðssetningar þvert á miðla.
  • Meta og greina tækifæri þar sem gervigreind getur skapað raunverulegt virði.
  • Miðla þekkingu og aðstoða samstarfsfólk við að nýta gervigreindartól í markaðstengdum störfum.
  • Framkvæma tilraunir, prófa nýjar nálganir og vinna stöðugt að því að bæta markaðsferla og árangur.
Menntunar- og hæfniskröfur

Mestu máli skiptir að þú hafir raunverulega reynslu af notkun gervigreindar, skiljir hagnýta möguleika hennar í markaðsstarfi og hafir áhuga á að hjálpa okkur að þróa snjallari leiðir til efnissköpunar, stjórnun markaðsherferða og samskipta við viðskiptavini.

Við leitum að einstaklingi með:

  • Menntun sem að nýtist í starfi, t.d. á sviði markaðsmála.
  • Mikinn áhuga á markaðsmálum, tækni og gervigreind.
  • Reynslu af gervigreindar erindrekum, sjálfvirknivæðingu og verkferlum sem byggja á gervigreind.
  • Reynslu af Google Ads, Meta Ads, SEO, PPC og efnismarkaðssetningu.
  • Góða samskiptahæfni og getu til að vinna bæði sjálfstætt og sem hluti af teymi.
  • Góða færni í ensku og íslensku.
Advertisement published18. June 2026
Application deadline28. June 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Suðurlandsbraut 34, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Artificial intelligencePathCreated with Sketch.Search Engine Optimization (SEO)PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Market analysisPathCreated with Sketch.MarketingPathCreated with Sketch.Market researchPathCreated with Sketch.Online marketingPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Definition of target groupsPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags