Íslandsbanki
Íslandsbanki
Íslandsbanki

Sérfræðingur í gæðastjórnun

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi í gæðamálum til starfa hjá Íslandsbanka.
Starfið felur í sér lykilhlutverk í mótun og þróun gæðastjórnunar bankans og hentar einstaklingum sem vilja hafa raunveruleg áhrif á stjórnarhætti, ferla og gæðamenningu í flóknu og krefjandi rekstrarumhverfi. Starfið heyrir undir svið Stafrænnar þróunar og gagnastýringar.

Viðkomandi ber ábyrgð á uppbyggingu, rekstri og áframhaldandi þróun gæðakerfis bankans í samræmi við gæðastefnu, lög og reglur sem og viðurkennda stjórnarhætti. Hlutverkið er bæði stefnumótandi og framkvæmdamiðað og felur í sér náið samstarf við stjórnendur og sérfræðinga þvert á bankann. Lögð er sérstök áhersla á einföldun, samræmingu og notendavænar lausnir sem styðja við daglegt starf, ákvarðanatöku og stöðugar umbætur.

Í starfinu gefst tækifæri til að taka virkan þátt í þróun gæðastjórnunar sem stjórntækis, styðja við fylgni og skilvirkni í starfsemi bankans og móta skýra framtíðarsýn fyrir gæðamál Íslandsbanka.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með mótun, rekstri og þróun gæðakerfis Íslandsbanka.
  • Eignarhald á gæðakerfi bankans og samræming innra regluverks, ferla og verklags.
  • Tryggja að gæðaskjöl og verklagsreglur séu skýrar, notendavænar og endurspegli raunverulega starfsemi.
  • Greining og yfirsýn yfir stöðu gæðamála, frávik og þróun yfir tíma, ásamt reglubundinni upplýsingagjöf til stjórnenda.
  • Samræming og samskipti við innri og ytri úttektaraðila vegna gæðamála og eftirfylgni með niðurstöðum.
  • Þátttaka í þróun og einföldun ferla, með áherslu á stafrænar lausnir, sjálfvirkni og gagnadrifna nálgun.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsnám æskilegt.
  • Yfirgripsmikil reynsla af gæðastjórnun, ferlastjórnun, breytingastjórnun eða skyldum málaflokkum.
  • Reynsla af innleiðingu og rekstri gæðakerfa og umbótaverkefna.
  • Þekking á stjórnarháttum og regluverki fjármálafyrirtækja er kostur.
  • Góð greiningarhæfni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni til að vinna þvert á skipulag.
Við bjóðum
  • Ábyrgðarmikið og áhrifaríkt starf í framsæknu og faglegu starfsumhverfi.
  • Tækifæri til að móta og þróa gæðastjórnun bankans til framtíðar.
  • Samstarf við öflugt fagfólk þvert á bankann.
  • Sveigjanlegt vinnuumhverfi og góðan starfsanda.
  • Tækifæri til starfsþróunar og símenntun.

Frekari upplýsingar:

Frekari upplýsingar veita Sigrún Dóra Sævinsdóttir ([email protected]) deildarstjóri Skilvirkrar starfsemi og Guðlaugur Örn Hauksson ([email protected]) ráðningarstjóri. 

Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu.

Advertisement published5. May 2026
Application deadline17. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DeterminationPathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.Change managementPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.Designing proceduresPathCreated with Sketch.Implementing proceduresPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Quality tracking systemsPathCreated with Sketch.MeticulousnessPathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags