Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Sérfræðingur – Askur, mannvirkjarannsóknarsjóður HMS

Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem leggur áherslu á öfluga miðlun upplýsinga, árangursríkt samstarf við hagaðila og nýsköpun á byggingarmarkaði?

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leitar að öflugu starfsfólki í teymi starfsumhverfis mannvirkjagerðar til að stuðla að betri innleiðingu byggingarregluverks og veita hagaðilum mannvirkjageirans stuðning til að þeir nái árangri við að uppfylla grunnkröfur um mannvirki. Þetta er gert með því að stuðla markvisst að aukinni þekkingu og rannsóknum ásamt því að vinna að fræðslu og að viðhalda virku samtali við hagaðila. Teymið vinnur einnig að samræmingu byggingareftirlits og minni kolefnislosun á íslenskum byggingamarkaði.

Fjölbreytt og krefjandi verkefni eru framundan við þróun á starfsumhverfi mannvirkjagerðar í takt við hlutverk og framtíðarsýn stofnunarinnar.

HMS óskar eftir að ráða sérfræðing sem hefur umsjón með Aski, mannvirkjarannsóknarsjóði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með uppbyggingu og þróun á skipulagi og verkferlum Asks
  • Umsjón með reglulegum úthlutunum, þ.m.t. auglýsingum, kynningum og fyrirspurnum
  • Samningagerð og eftirfylgni með styrkþegum
  • Umsjón með markaðsstarfi Asks, m.a. greinarskrif, kynningar og tölfræði
  • Samskipti við ytri hagaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á byggingasviði s.s. byggingafræði, tæknifræði, verkfræði eða arkitektúr er skilyrði
  • Reynsla af byggingaframkvæmdum og hönnun er kostur
  • Reynsla í verkefnastjórnun og samningagerð er kostur
  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvætt og lausnamiðað viðhorf
  • Gott vald á íslensku og ensku
Advertisement published22. May 2025
Application deadline5. June 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Very good
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags