Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Sérfræðingur á skrifstofu menningar og skapandi greina

Laus er til umsóknar staða sérfræðings á skrifstofu menningar og skapandi greina í menningar, nýsköpunar og háskólaráðuneyti með áherslu á inngildingu og aðgengi að menningu og listum. Starf sérfræðings felst í undirbúningi og framfylgd áætlana sem snúa að lista- og menningarstarfsemi sem heyrir undir ráðuneytið og krefst mikilla samskipta við forsvarsfólk lista- og menningarstofnana. Sérfræðingurinn kemur að gagnaöflun, úrvinnslu og greiningum, undirbúningi lagasetningar, stefnumótun, áætlanagerð, fjárhagsáætlunum, verkáætlunum og eftirfylgni. Hann þarf að eiga í miklum samskiptum við hagaðila bæði innanlands og erlendis. Viðkomandi leiðir samningagerð við fjölmargar stofnanir og hagaðila fyrir hönd ráðuneytisins og svarar fyrirspurnum sem ráðuneytinu berast.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiðandi hlutverk í stefnumótun í málefnum menningar og skapandi greina með áherslu á aukið aðgengi allra að menningu, óháð búsetu og efnahag.
  • Öflun og úrvinnsla gagna ásamt ritun greinargerða og minnisblaða í tengslum við stöðu menningarmála og skapandi greina.
  • Tengiliður við nánar tilgreindar stofnanir ráðuneytisins á sviði menningar og lista.
  • Samskipti við innlenda og erlenda hagaðila í listum og menningu.
  • Ráðgjöf í málaflokknum innan ráðuneytis.
  • Aðkoma að undirbúningi lagasetningar og rýni á lagaumgjörð menningar.
  • Þátttaka og ábyrgð á öðrum sérfræðiverkefnum eftir atvikum.
  • Þátttaka í starfshópum, nefndum og ráðum sem fulltrúi ráðuneytisins, bæði innanlands og erlendis.
  • Aðstoð við framkvæmd viðburða á vegum ráðuneytisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Framúrskarandi samskiptafærni ásamt reynslu og innsýn í menningu, listir og skapandi greinar.
  • Reynsla af gagnaöflun, úrvinnslu gagna og skýrslugerð. Reynsla af vinnu með menningartölfræði er kostur.
  • Reynsla af því að vinna í verkefnum tengdum barnamenningu og aðgengi að menningu er kostur.
  • Reynsla af stefnumótun og áætlanagerð á sviði menningar og skapandi greina.
  • Reynsla af verkefnastjórnun.
  • Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur.
  • Metnaður og vilji til að ná árangri.
  • Alþjóðleg þekking eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Skipulagsfærni, frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum, sveigjanleiki og geta til að vinna fjölbreytt verkefni undir álagi.
  • Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. Gott vald á norrænu tungumáli kostur.
Advertisement published3. February 2026
Application deadline16. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Reykjavík, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Creativity
Work environment
Professions
Job Tags