Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Sálfræðingur í Barnahúsi

Barna- og fjölskyldustofa auglýsir eftir sálfræðingi í Barnahús til þess að vinna með börnum og unglingum sem eru þolendur ofbeldis og fjölskyldum þeirra.

Barnahús sinnir málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt eða orðið vitni að ofbeldi og nær þjónustan til barna um allt land. Barnahús hefur verið leiðandi í þjónustu við börn, þróun vandaðra vinnubragða og innleiðingu gagnreyndra aðferða.

Sálfræðingar fá þjálfun og handleiðslu í gagnreyndum aðferðum við greiningu á áhrifum áfalla, sálfræðimeðferð (m.a. áfallamiðaðri meðferð) og við framkvæmd rannsóknarviðtala við börn sem grunur leikur á að hafi orðið fyrir ofbeldi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greining og mat, gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf
  • Rannsóknarviðtöl við börn og unglinga
  • Ráðgjöf og fræðsla til barnaverndarþjónustu
  • Skýrslu- og vottorðaskrif 
  • Þátttaka í kynningarstarfi á starfsemi Barnahúss
  • Ferðalög vegna þjónustu við börn sem eru staðsett utan höfuðborgarsvæðis
  • Þátttaka í öðrum verkefnum í samráði við forstöðumann Barnahúss 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sálfræðings er skilyrði
  • Þekking og reynsla af sálfræðilegri greiningu og gagnreyndum aðferðum
  • Áhugi á að vinna með börnum og unglingum sem eru þolendur ofbeldis og fjölskyldum þeirra, reynsla á sviði meðferðar barna er kostur
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð samstarfshæfni, sveigjanleiki og jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og samstarfsaðila
  • Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði, önnur tungumálakunnátta er kostur 
Advertisement published30. March 2026
Application deadline20. April 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Borgartún 21*, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Psychologist
Professions
Job Tags