

Reyndur Iðnaðarmaður óskast
Iðnaðarmaður/Vélvirki/Vélfræðingur/Smiður
Við leitum að öflugum iðnaðarmanni til starfa hjá RST Net í verkefni um allt land.
Við erum að leita að starfsmanni með langa starfsreynslu, er sjálfstæður í vinnubrögðum, vandvirkur og sýnir frumkvæði við öflun verkefna.
Helstu verkefni og ábyrgð eru m.a. uppsetning á búnaði, viðgerðir og þjónusta fyrir raforkuframleiðendur og dreifingaraðila víða um landið.
Gott starfsumhverfi og fjölbreytt verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Löng reynsla sem iðnaðarmaður eða vélstjóri.
Áralöng reynsla af þjónustu og viðgerðum á tækjum og búnaði.
Samstarfs- og samskiptahæfni og rík þjónustulund.
Gott vald á Íslensku, talaðri og skrifaðri er skilyrði.
Bílpróf skilyrði.
Uppsetningar á búnaði og viðgerðir og þjónusta fyrir raforkuframleiðendur og dreifingaraðila um allt land.
Iðnaðarmaður með reynslu af rekstri þjónustu eða viðgerða.
Icelandic
English
German










