Landsvirkjun
Landsvirkjun
Landsvirkjun

Rekstur rafveitna á Þjórsársvæði

Starfið tilheyrir sviði vatnsafls og gegnir mikilvægu hlutverki við að tryggja öruggan og áreiðanlegan rekstur raforkukerfa. Í starfinu felst umsjón með svæðisveitu, rofastjórnun og tæknilegri skjölun. Jafnframt verður viðkomandi fulltrúi ábyrgðarmanns Rafmagnsöryggisstjórnunarkerfis (RÖSK) á svæðinu og tekur þátt í að viðhalda og efla öryggismenningu Landsvirkjunar. Við leitum að einstaklingi sem býr yfir góðri fagþekkingu, sýnir frumkvæði og leggur áherslu á öryggi, gæði og gott samstarf.

Starfsstöð er í Búrfelli, Þjórsársvæði.

Helstu verkefni:

  • Umsjón með rofastjórnun á starfssvæðinu, þar á meðal í vindlundi við Vaðöldu.
  • Umsjón með rekstri og viðhaldi rafveitu á svæðinu.
  • Umsjón með teikningum, tæknigögnum og annarri tæknilegri skjölun sem tengist rafveitunni.
  • Viðhald, endurskoðun og gerð leiðbeininga og gátlista.

Hæfni:

  • Menntun á sviði rafmagns sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af rekstri og viðhaldi háspennukerfa.
  • Góð þekking á stjórn- og varnarbúnaði raforkukerfa.
  • Reynsla af bilanagreiningu á rafbúnaði.
  • Jákvæðni og góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Sjálfstæði í starfi og skipulögð vinnubrögð.

Umsókninni skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir reynslu, hæfni og hvað kveikir áhuga á starfinu.

Advertisement published7. August 2026
Application deadline16. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Búrfellsvirkjun 166701, 801 Selfoss
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Meticulousness
Work environment
Professions
Job Tags