Akureyri - Berjaya Iceland Hotels
Akureyri - Berjaya Iceland Hotels
Akureyri - Berjaya Iceland Hotels

Rekstrarstjóri Berjaya Akureyri

Félagið leitar að drífandi leiðtoga til að halda utan um daglegan rekstur á hóteli félagsins á Akureyri. Hótelið telur 99 herbergi auk þess sem þar er rekinn veitingastaðurinn Aurora Restaurant. Starfið felur í sér yfirumsjón með daglegum rekstri, stuðla að sterku teymisstarfi þvert á deildir með það að markmiði að besta rekstrarárangur og þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Daglegur rekstur hótelsins til að tryggja samræmda og skilvirka heildarstarfsemi hótelsins
  • Samræma og tengja saman daglegan rekstur milli deilda og stuðla að sterku teymisstarfi þvert á hótelið með það að markmiði að besta þjónustu og rekstrarárangur
  • Umsjón með daglegum mannauðsmálum, vaktaskipulagi, þjálfun starfsfólks, gæðum og þjónustu
  • Aðkoma að ýmsum mannauðsmálum í samvinnu við hótelstjóra og mannauðssvið
  • Fylgja eftir rekstraráætlunum í nánu samstarfi við hótelstjóra
  • Stuðla að góðum starfsanda með jákvæðu viðmóti og vera fyrirmynd í samskiptum og vinnubrögðum
  • Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast rekstri hótelsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Haldbær reynsla af hótelstörfum, sérstaklega innan gistideildar
  • Reynsla af stjórnun og mannauðsmálum er kostur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Miklir leiðtogahæfileikar og geta til að byggja upp jákvæða vinnustaðamenningu
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð og sterk ábyrgðarkennd
  • Lausnamiðuð nálgun og hæfni til að vinna undir álagi
  • Góð viðskiptavitund og hæfni til að vinna með lykilmælikvarða
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Framúrskarandi færni í íslensku og ensku, í töluðu og rituðu máli
Advertisement published27. March 2026
Application deadline7. April 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Þingvallastræti 23, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.Change managementPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human resourcesPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.HiringPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Employee schedulingPathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags