Samhjálp
Samhjálp
Samhjálp

Ráðgjafi í áfengis- og vímuefnameðferð óskast í Hlaðgerðarkot

Samhjálp óskar eftir að ráða ráðgjafa í 100% starf á meðferðarheimilinu Hlaðgerðarkoti í Mosfellsdal. Ráðgjafinn mun sinna karlahópi í meðferð.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að styðja fólk á batavegi og vill leggja sitt af mörkum til faglegs og einstaklingsmiðaðs meðferðarstarfs.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stuðnings- og ráðgjafarviðtöl við skjólstæðinga innan ramma meðferðarstarfsins.
  • Skipulagning og stjórnun hópastarfs í samráði við fagteymi.
  • Þátttaka í mati á stöðu og meðferðarþörf skjólstæðinga í samvinnu við fagteymi.
  • Fræðsla og fyrirlestrar fyrir skjólstæðinga.
  • Gerð útskriftaráætlana í samvinnu við skjólstæðinga og eftir atvikum aðra fagaðila.
  • Skráning upplýsinga um meðferð og framgang skjólstæðinga.
  • Þátttaka í þverfaglegu teymisstarfi og samstarf við aðra fagaðila eftir því sem við á.
  • Vikuleg hópeftirfylgni og stuðningsviðtöl með útskrifuðum skjólstæðingum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Viðeigandi menntun sem nýtist í meðferðar- og ráðgjafarstarfi.
  • Reynsla af meðferðarstarfi eða sambærilegum störfum er skilyrði.
  • Starfsleyfi sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi er kostur.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Sjálfstæði, frumkvæði og ábyrgð í starfi.
  • Umhyggja og virðing í samskiptum við skjólstæðinga og samstarfsfólk.
  • Hæfni og vilji til að starfa í samræmi við gildi, markmið og faglega nálgun Samhjálpar.
  • Umsækjandi verður að hafa hreint sakavottorð
Umsóknarfrestur og nánari upplýsingar

Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember. Umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi skal senda á [email protected].

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Fossdal, Forstöðumaður í Hlaðgerðarkoti, á [email protected].

Advertisement published28. October 2026
Application deadline15. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Hlaðgerðarkot 124721, 271 Mosfellsbær
Type of work
Professions
Job Tags