

Ráðgjafi hjá Suðurhlíð - 50% starf
Vilt þú leggja þitt af mörkum til að styðja þolendur ofbeldis?
Suðurhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, leitar að ráðgjafa í 50% starf til eins árs með möguleika á framlengingu. Við leitum að einstaklingi sem býr yfir fagmennsku, hlýju og góðri samskiptahæfni og hefur áhuga á að taka þátt í að efla þjónustu við þolendur ofbeldis. Í starfinu felst að veita ráðgjöf, stuðning og fræðslu með virðingu fyrir aðstæðum, þörfum og ákvörðunum hvers einstaklings. Lögð er áhersla á áfallamiðaða nálgun, öryggi og valdeflingu, þar sem unnið er á forsendum þolenda.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka og einstaklingsviðtöl við þolendur ofbeldis.
- Ráðgjöf, stuðningur og fræðsla um eðli og afleiðingar ofbeldis.
- Mat á þörfum í samráði við þjónustuþega og leiðsögn um viðeigandi úrræði.
- Samstarf við stofnanir, fagfólk og félagasamtök í þágu þjónustuþega.
- Skráning og eftirfylgni mála í samræmi við verklag og trúnað.
- Þátttaka í þróun þjónustu, fræðslu og kynningu á starfsemi Suðurhlíðar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem félagsráðgjöf, sálfræði, hjúkrunarfræði eða sambærileg menntun.
- Reynsla af ráðgjöf eða stuðningi við fólk í viðkvæmri stöðu.
- Þekking á ofbeldi, afleiðingum áfalla og áfallamiðaðri nálgun er æskileg.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að mæta fólki af nærgætni og virðingu.
- Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.
- Hæfni til samstarfs við ólíka fagaðila.
- Góð íslensku- og enskukunnátta. Önnur tungumálakunnátta er kostur.
- Rík ábyrgðarkennd, fagleg dómgreind og virðing fyrir trúnaði.
- Hreint sakavottorð.
Advertisement published12. October 2026
Application deadline26. October 2026
Language skills
EnglishRequired
Location
Aðalgata 60, 230 Reykjanesbær
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (7)

Komdu til liðs við okkur á Andrastaði – vantar fólk í aukavinnu
Andrastaðir

Málastjóri í barnaverndarþjónustu með áherslu á fylgdarlaus börn og ungmenni
Suðurnesjabær

Sérfræðingur á Læk - athvarfið Lækur
Hafnarfjarðarbær

Félagsráðgjafi - Geðheilsumiðstöð barna - tímabundið starf
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Félagsráðgjafi- Heilsugæslan Garðabæ
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Félagsráðgjafi- Heilsugæslan Hlíðum
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær