Vinnumálastofnun
Vinnumálastofnun

Ráðgjafi á Akureyri

Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða ráðgjafa á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Norðurlandi.

Ráðgjafi þjónustar atvinnuleitendur og atvinnurekendur með það að markmiði að vinna gegn atvinnuleysi. Í starfi sínu þarf ráðgjafi að geta beitt fjölbreyttum aðferðum og myndað tengsl við ólíka aðila til að vinna að hagsmunum atvinnuleitenda og atvinnulífs.

Starfstöð ráðgjafa er á Akureyri.

Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunnar: Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn ráðgjöf  og vinnumiðlun.  

  • Ráðgjöf við flóttamenn.  

  • Ráðgjöf og vinnumiðlun við fólk með skerta starfsgetu. 

  • Afgreiðsla og símavaktir.  

  • Skráningar, upplýsingamiðlun og samskipti við fræðsluaðila.  

  • Kynningar, starfsleitarfundir og umsjón með námskeiðum og virkniúrræðum.  

  • Koma á og viðhalda tengslum við fyrirtæki og aðra hagsmunaaðila.  

  • Önnur tilfallandi verkefni.  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi s.s. á sviði náms- og starfsráðgjafar,  þroskaþjálfunar eða önnur menntun á félags- eða heilbrigðissviði. 

  • Reynsla af ráðgjöf er æskileg.  

  • Góð þekking á íslensku samfélagi. 

  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góðir skipulagshæfileikar.  

  • Góð samskiptahæfni, þjónustulund og metnaður til að skila góðu starfi.  

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál sem nýtast í starfi eru kostur.  

  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð. 

Frekari upplýsingar

Nánari upplýsingar um starfið veita Hallveig Ragnarsdóttir, mannauðsstjóri ([email protected]) og Svava Júlía Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustusviðs ([email protected]) eða í síma 515-4800. 

Advertisement published18. May 2026
Application deadline1. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Skipagata 14, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Social workerPathCreated with Sketch.Job/school counselorPathCreated with Sketch.Developmental counselor
Professions
Job Tags