

Öryggisvörður í hlutastarf
Ertu að leita að hlutastarfi með föstum vinnutíma á kvöldin?
Öryggismiðstöðin óskar eftir áreiðanlegum og þjónustuliprum öryggisverði til starfa í hlutastarfi við gæslu í verslun á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða fasta vakt á kvöldin aðra hverja viku, frá kl. 18:00–00:00. Starfið hentar vel þeim sem vilja stöðugleika í hlutastarfi samhliða námi eða öðrum verkefnum.
Við leitum að einstaklingi sem er varkár, ábyrgur og góður í mannlegum samskiptum með ástríðu fyrir öryggismálum.
Helstu verkefni
- Almenn öryggisgæsla í verslun
- Eftirlit með umgengni, vöktun og viðveru á svæðinu
- Skýrslugerð og upplýsingamiðlun eftir þörfum
- Samskipti við starfsfólk verslunar og viðskiptavini
Hæfniskröfur
- Gild ökuréttindi og hreint sakavottorð
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð enskukunnátta
- Reynsla af öryggis- eða þjónustustörfum
Við bjóðum
- Hlutastarf með reglubundnum og skýrum vinnutíma
- Þjálfun og stuðning við að takast á við verkefnin
- Traustan vinnustað með sterkum gildum: forystu, umhyggju og trausti
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá. Lágmarksaldur er 20 ár. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á [email protected]
Starfið er hluti af Mönnuðum lausnum hjá Öryggismiðstöðinni, sem veitir viðskiptavinum fjölbreytta öryggisþjónustu, svo sem útköll, vaktferðir, verðmætaflutninga og almenna öryggisgæslu. Hjá Öryggismiðstöðinni starfar öflugur hópur fagfólks sem vinnur eftir gildunum forystu, umhyggju og trausti, með áherslu á fagmennsku, gæði og persónulega þjónustu.
