First Water
First Water
First Water

Öryggisstjóri

Við leitum að pottþéttum öryggisstjóra til að hafa umsjón með öryggismálum félagsins og sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum sem þeim tengjast.

Starfsstöðin er í höfuðstöðvum First Water í Kópavogi en felur einnig í sér vinnu á vettvangi uppbyggingar í Þorlákshöfn.

Helstu verkefni

  • Umsjón og eftirlit með öryggismálum félagsins
  • Áhættumat og innri úttektir á starfsstöðvum félagsins
  • Öryggisnámskeið og fræðsla fyrir starfsfólk í samráði við fræðslustjóra
  • Eftirlit með öryggiskerfi og öryggisbúnaði, aðgangsstýringu, brunakerfi, myndavélakerfum og hússtjórnarkerfi.
  • Samskipti við lögreglu og aðrar opinberar stofnanir
  • Utanumhald, greining og rannsóknir á frávikum og slysum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Þekking eða reynsla af sambærilegum verkefnum er kostur
  • Gott vald á ritaðri og talaðri íslensku og ensku
  • Frumkvæði, öguð vinnubrögð og greiningarhæfni
  • Góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
  • Góð almenn tölvukunnátta

Nánari upplýsingar veitir Valgerður María Friðriksdóttir, mannauðsstjóri, [email protected]

Umsóknafrestur er til og með 4. maí

First Water er framsækið íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að uppbyggingu laxeldis á landi, og nýtir til þess náttúruauðlindir Íslands á sjálfbæran hátt. Lykillinn að velgengni félagsins mun liggja í mannauði þess og leggur félagið því ríka áherslu á öflugan hóp reynslumikils og drífandi starfsfólks.

Advertisement published23. April 2025
Application deadline4. May 2025
Language skills
No specific language requirements
Location
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags