Icelandia
Icelandia
Icelandia

Ökuleiðsögumaður

Ferðaskrifstofa Icelandia leitar að jákvæðum, líflegum og ábyrgum ökuleiðsögumanni í fast starf til að taka þátt í spennandi og fjölbreyttu starfi leiðsögumanns. Ef þú ert stemningsmanneskja með D-95 réttindi sem finnst gaman að segja frá og halda vel utan um hóp, þá er þetta tilvalið fyrir þig! Unnið er skv. 2-2-3 vaktafyrirkomulagi.

Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðafólki með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiðsögn í dagsferðum 

  • Taka virkan þátt í undirbúningi ferða og vera sýnileg/ur og aðgengileg/ur á vettvangi. 

  • Tryggja öryggi gesta og starfa í samræmi við umhverfis-, öryggis- og gæðaviðmið fyrirtækisins. 

  • Akstur og þjónusta við farþega. 

  • Umsjón og umhirða bifreiða. 

  • Sinna öðrum tilfallandi verkefnum eftir þörfum. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Aukin ökuréttindi D og réttindi til aksturs í atvinnuskyni (95). 

  • Menntun í leiðsögumennsku.  

  • Reynsla af akstri hópferðabíla er æskileg. 

  • Hreint sakavottorð. 

  • Mjög góð enskukunnátta í töluðu máli er skilyrði – önnur tungumál eru kostur. 

  • Hæfni í mannlegum samskiptum og fagmennska í framkomu. 

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt snyrtimennsku og stundvísi. 

  • Jákvæðni, frumkvæði og þjónustulund. 

Fríðindi í starfi
  • Einstakt tækifæri til að vinna með reyndu og jákvæðu teymi.
  • Lifandi og fjölbreytt vinnuumhverfi.
Advertisement published9. December 2025
Application deadline23. December 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Optional
Advanced
Location
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DeterminationPathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.D-95 réttindiPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags