

NPA aðstoðarfólk óskast
Proficiency in Icelandic is a necessary requirement
Ég er 41. ára hreyfihamlaður einstaklingur sem óskar eftir starfsmanni í vinnu sem NPA aðstoðarmaður.
Starfið felst í aðstoð við daglegar athafnir og heimilishald eins og að versla inn, matseld, að ganga frá þvotti, dýrahald o.s.frv. Tvö börn eru á heimilinu aðra hverja helgi og tveir kettir búa einnig á heimilinu svo starfið hentar ekki fólki með kattaofnæmi.
Ég hef mikinn áhuga á íþróttum og tónlist, Ég fer í pílu einu sinni í viku og hef áhuga á að fara á viðburði tengd tónlist og íþróttum. Einnig hef ég mikinn áhuga á ferðalögum og ferðast reglulega út á land að heimsækja fjölskyldu mína.
Umsækjandi þarf að vera á aldursbilinu 30-50 ár og þarf að geta hafið störf í júlí. Um er að ræða tímavinnu og tímabundið starf með möguleika á áframhaldandi starfi. Unnið er á 12 tíma vöktum.
Aðstoðarmanneskjan þarf að vera líkamlega hraust, getað eldað og getað verið sveigjanleg í starfi. Skilyrði er að umsækjandi sé með bílpróf og hreint sakavottorð. Einnig er gott hald á íslensku mikilvægt.
Laun eru skv. sérkjarasamningi NPA miðstöðvarinnar við Eflingu.
Icelandic


























