
Reykjanesbær
Reykjanesbær er fjölskylduvænn bær sem þroskar og nærir hæfileika allra í gegnum öflugt skóla-, íþrótta-, og menningarstarf. Íbúar sinna fjölbreyttum störfum í vistvænu fjölmenningarsamfélagi sem einkennist af framsækni, eldmóði og virðingu.
Reykjanesbær hefur að markmiði að hafa ávallt á að skipa hæfum og
ánægðum starfsmönnum sem geta sýnt frumkvæði í störfum sínum og veitt bæjarbúum framúrskarandi þjónustu. Það er sameiginlegt verkefni starfsmanna og stjórnenda sveitarfélagsins að veita bæjarbúum sem allra besta þjónustu og sú samvinna byggir á gagnkvæmu trausti og virðingu fyrir ólíkum
sjónarmiðum.

Menntasvið - Talmeinafræðingur
Reykjanesbær leitar að metnaðarfullum talmeinafræðingi til að bætast í öflugan hóp sérfræðinga í skólaþjónustu á skrifstofu menntasviðs. Skólaþjónustan starfar í þverfaglegu og sveigjanlegu starfsumhverfi þar sem samvinna, faglegt starf og farsæld í þágu barna og fjölskyldna þeirra eru í forgrunni.
Starfsfólk Reykjanesbæjar vinnur samkvæmt grunngildum bæjarins, virðingu, eldmóði og framsækni, með það að markmiði að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu á hverjum tíma. Menntastefna sveitarfélagsins, Með opnum hug og gleði í hjarta, endurspeglar skýra sýn þar sem börn eru í forgangi, fjölbreytileiki er styrkur og faglegt menntasamfélag er grundvöllur árangurs.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Athuganir vegna barna með mál- og talmein í leik- og grunnskólum
- Ráðgjöf vegna nemenda sem nýta óhefðbundin tjáskipti og tjáskiptatækni
- Fræðsla og ráðgjöf til foreldra og starfsfólks í skóla vegna einstaklinga og/eða hópa
- Þátttaka í þverfaglegu teymi skólaþjónustu
- Samstarf við aðra þjónustuveitendur í þágu farsældar barna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fullgilt nám í talmeinafræðum og réttindi til að starfa sem talmeinafræðingur á Íslandi
- Þekking og reynsla í ráðgjöf og athugunum er varða mál- og talmein hjá börnum á leik- og grunnskólaaldri
- Þekking á óhefðbundnum tjáskiptum og tjáskiptatækni
- Skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði
- Góð hæfni í íslensku, töluðu og rituðu máli
- Jákvætt viðhorf, lausnamiðuð hugsun og leikni í mannlegum samskiptum
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Advertisement published1. April 2026
Application deadline17. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Grænásbraut 910, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
ProactivePositivityAmbitionConscientiousIndependencePlanningTeam work
Professions
Job Tags