Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Menntasvið Reykjanesbæjar - Kennsluráðgjafi

Reykjanesbær leitar að metnaðarfullum kennsluráðgjafa til að bætast í öflugan hóp sérfræðinga í skólaþjónustu á skrifstofu menntasviðs. Skólaþjónustan starfar í þverfaglegu og sveigjanlegu starfsumhverfi þar sem samvinna, faglegt starf og farsæld í þágu barna og fjölskyldna þeirra eru í forgrunni.

Starfsfólk Reykjanesbæjar vinnur samkvæmt grunngildum bæjarins, virðingu, eldmóði og framsækni, með það að markmiði að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu á hverjum tíma. Menntastefna sveitarfélagsins, Með opnum hug og gleði í hjarta, endurspeglar skýra sýn þar sem börn eru í forgangi, fjölbreytileiki er styrkur og faglegt menntasamfélag er grundvöllur árangurs.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsluráðgjöf við leik- og grunnskóla ásamt þátttöku í þverfaglegu ráðgjafateymi skólaþjónustu, þar á meðal þátttaka í nemendaverndarráði.
  • Ráðgjöf og stuðningur við foreldra og starfsfólk leik- og grunnskóla vegna einstaklinga og/eða hópa með fjölbreyttar þarfir.
  • Handleiðsla og stuðningur til starfsfólks leik- og grunnskóla vegna fjölbreyttra og árangursríkra kennsluhátta með áherslu á snemmbæran stuðning. 
  • Stuðningur við endurmenntun, nýbreytni- og þróunarstarf  leik- og grunnskóla, m.a. ráðgjöf við stjórnendur og starfsfólk til að efla þá í starfi og stuðla að samstarfi. 
  • Faglegt samstarf við aðra þjónustuveitendur innan og utan sveitarfélags.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Viðbótarmenntun á sviði kennslu- og menntunarfræða og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af kennslufræðilegri ráðgjöf og/eða kennslufræðilegri forystu.  
  • Þekking og reynsla á fjölbreyttum náms- og kennsluaðferðum. 
  • Reynsla af starfi í skólaþjónustu sveitarfélaga og/eða skipulagi stoðþjónustu skóla er kostur.
  • Reynsla af skipulagningu, framkvæmd og eftirfylgni verkefna.
  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum.
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði í starfi. 
  • Jákvætt viðhorf, lausnamiðuð hugsun og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð íslenskukunnátta í rituðu og mæltu máli.
  • Hreint sakavottorð. 
    Fríðindi í starfi
    • Bókasafnskort
    • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
    • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
    • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
    Advertisement published16. June 2026
    Application deadline2. July 2026
    Language skills
    IcelandicIcelandic
    Required
    Expert
    Location
    Tjarnargata 12, 230 Reykjanesbær
    Type of work
    Skills
    PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team work
    Professions
    Job Tags