
Raftækjalagerinn
Raftækjalagerinn er hluti af Heimilistækjasamstæðunni en auk lagersins rekur fyrirtækið verslanirnar Heimilistæki, Tölvulistann, Rafland, Byggt og búið, Kúnígúnd og Iittala búðina, heildsöluna Ásbjörn Ólafsson og verkstæði.
Raftækjalagerinn er vöruhús allra félaganna og sér um að halda góðu skipulagi á vörum og birgðum hvers félags fyrir sig. Lagerinn okkar er með stærsta smásöluróbót landsins sem tekur ríflega 37 þúsund kassa. Viðskiptavinir sem kaupa stór heimilistæki geta sótt vörurnará lagerinn og starfsfólk Raftækjalagerins sér um heimsendingarþjónustu stórra tækja á höfuðborgar-svæðinu. Þá sér lagerinn sér einnig um að afgreiða út netpantanir og endurnýja birgðir í verslunum.
Hjá samstæðunni starfa tæplega 200 einstaklinga í fjölbreyttum störfum þar sem lögð er áhersla á jákvætt starfsumhverfi og vinalegan starfsanda.

Meiraprófsbílstjóri
Raftækjalagerinn leitar að öflugum meiraprófsbílstjóra (C réttindi) á lager fyrirtækisins. Starfið felur í sér útkeyrslu til og frá lagernum á flutningastöðvar, til verslana eða viðskiptavina fyrirtækisins auk annarra tilfallandi verkefna á lager.
Vinnutími:
Vinnutími er kl. 8–16 virka daga tvær af hverjum þremur vikum. Þriðju vikuna er vinnutími kl. 10–18. Gert er ráð fyrir að starfsfólk taki helgarvaktir skv. samkomulagi.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Akstur og afhending á vörum.
- Samskipti við viðskiptavini.
- Þrif og umhirða bifreiðar.
- Aðstoð á lager eftir þörfum, m.a. við frágang eða afhendingu vara.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meirapróf (C).
- Lyftarapróf kostur.
- Góð samskiptahæfni, þjónustulund og jákvæðni.
- Frumkvæði og sjálfstæði vinnubrögð.
- Stundvísi og reglusemi.
- Góð íslenskukunnátta.
- 20 ára eða eldri.
- Reyklaus og heint sakavottorð.
Advertisement published24. April 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Klettagarðar 21, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
DeliveryCargo transportation
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Fjarðabyggð - Austurland: Meiraprófsbílstjóri óskast á ruslabíl/krókabíl(C driver wanted)
Íslenska gámafélagið ehf.

Starfsmaður í móttöku þurr- og kælivöru í vöruhúsi
Garri

Hlutastarf 18+ ára, áfyllingar og tiltekt í verslun
BAUHAUS slhf.

Meiraprófsbílstjóri - sumarstarf
Fóðurblandan

Starfsmaður í vöruhúsum og dreifingu
Nói Síríus

Lagerstjóri Kvik innréttinga
Kvik

Lagerstarfsmaður
Íslyft / Steinbock þjónustan ehf

Verslunarstjóri - Prís
Prís

Vöruhús Fagkaupa óskar eftir starfsfólki
Fagkaup þjónustudeild

Bifreiðastjóri í sumarvinnu
Prentmet Oddi ehf.

Fagkaup óskar eftir þjónustu og sölufulltrúum
Fagkaup þjónustudeild

Starf í vöruhúsi
GÓRILLA VÖRUHÚS