Hyatt Centric Reykjavík
Hyatt Centric Reykjavík
Hyatt Centric Reykjavík

Markaðs- og upplifunarstjóri

Hyatt Centric Reykjavík leitar að skapandi og metnaðarfullum einstaklingi í starf markaðs- og upplifunarstjóra. Hér gefst einstakt tækifæri til að taka þátt í opnun hótelsins og móta ímynd og markaðsstarf þess frá grunni. Hótelið verður staðsett á Laugavegi og markar komu alþjóðlegu hótelkeðjunnar Hyatt til Íslands.

Starfið felur í sér að leiða markaðsmál og ásýnd Hyatt Centric Reykjavík og skapa eftirminnilega upplifun fyrir gesti. Viðkomandi verður hluti af öflugu teymi Hyatt og vinnur náið með samstarfsfólki og ytri samstarfsaðilum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróa og innleiða heildstæða markaðsstefnu fyrir hótelið 
  • Stýra samfélagsmiðlum, efnisgerð og auglýsingaherferðum
  • Hafa umsjón með upplifun gesta og tryggja samræmda ásýnd hótelsins, allt frá bókun til brottfarar.
  • Greina og fylgjast ánægju gesta og vinna að stöðugum umbótum í samstarfi við önnur teymi.  
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Viðeigandi menntun sem nýtist í starfi 
  • Haldgóð reynsla af markaðsmálum, vörumerkjauppbyggingu eða sambærilegum verkefnum
  • Reynsla úr hótel- eða ferðaþjónustu er kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að vinna í teymi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Þekking á stafrænum markaðsverkfærum
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, fleiri tungumál gagnleg
Fríðindi í starfi

 

Advertisement published4. June 2026
Application deadline18. June 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Laugavegur 176, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.CreativityPathCreated with Sketch.BrandingPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.MarketingPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags