Reykjavík - Fjármála- og áhættustýringarsvið
Reykjavík - Fjármála- og áhættustýringarsvið
Reykjavík - Fjármála- og áhættustýringarsvið

Mannauðssérfræðingur á fjármála- og áhættustýringarsviði

Ertu drífandi og með brennandi áhuga á mannauðsmálum?

Fjármála- og áhættustýringarsvið Reykjavíkurborgar leitar eftir öflugum mannauðssérfræðingi í tímabundið starf til 30. september 2026. Í boði eru spennandi starf og tækifæri til að leggja sitt af mörkum á stærsta vinnustað landsins þar sem fagmennska og aðhald skipta máli. Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni á sviði mannauðs- og fræðslumála. Leitað er að einstaklingum sem búa yfir mikilli samskiptahæfni, sýna frumkvæði og hafa tileinkað sér sjálfstæð vinnubrögð.


Starfið er á skrifstofu sviðsstjóra en skrifstofan leiðir stefnumótandi áherslur sviðsins og verkefni þvert á skrifstofur. Skrifstofan hefur aðsetur að Borgartúni 12-14.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í skipulagi og innleiðingu á áherslum á sviði mannauðs- og fræðslumála í samræmi við mannauðsstefnu Reykjavíkurborgar
  • Ráðgjöf og stuðningur til stjórnenda varðandi kjaramál og vinnurétt
  • Eftirfylgni með verklagsreglum og verkferlum í mannauðsmálum
  • Þátttaka, ráðgjöf og stuðningur til stjórnenda í ráðningum
  • Stuðningur við stjórnendur og starfsfólk vegna annarra starfsmannamála
  • Þátttaka í starfshópum þvert á svið Reykjavíkurborgar
  • Þátttaka í sértækum mannauðsverkefnum sem til falla
  • Önnur verkefni sem starfsmanni er falið að leysa af yfirmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólagráðu sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála æskileg
  • Þekkingu og reynslu af mannauðs- og fræðslumálum
  • Skipulagshæfni, fagleg og sjálfstæð vinnubrögð
  • Reynslu af vinnu við breytingar í vinnuumhverfi starfsmanna æskileg
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna í teymi
  • Góða íslenskukunnáttu C1 og enskukunnáttu B2 skv. evrópskum tungumálaramma
  • Þekkingu á opinberri stjórnsýslu (kostur)
Advertisement published23. September 2025
Application deadline8. October 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags