Eimskip
Eimskip
Eimskip

Mannauðsráðgjafi á Austurlandi

Eimskip leitar að öflugum og metnaðarfullum mannauðsráðgjafa til starfa á Austurlandi. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttum mannauðsmálum, nýtur þess að vinna með fólki og vill vera virkur samstarfsaðili stjórnenda í öflugu rekstrarumhverfi.

Starfsstöð er á skrifstofu Eimskips við Mjóeyrarhöfn.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita stjórnendum ráðgjöf og stuðning í daglegum mannauðsmálum
  • Tryggja innleiðingu og framkvæmd mannauðsstefnu félagsins
  • Taka þátt í þróun og innleiðingu mannauðstengdra umbótaverkefna
  • Skipuleggja og framkvæma ráðningaferli í samstarfi við stjórnendur
  • Samræma móttöku, þjálfun og aðlögun nýliða
  • Umsjón með mannauðstengdum mælikvörðum, greiningu gagna og framsetningu niðurstaðna
  • Styðja stjórnendur við undirbúning, framkvæmd og úrvinnslu starfsmannasamtala
  • Styðja við endurmenntun og starfsþróun starfsfólks í samstarfi við stjórnendur
  • Önnur tilfallandi verkefni 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Haldbær reynsla af mannauðsmálum æskileg
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Góð tölvukunnátta og færni til að læra á ný kerfi
  • Mikil skipulagshæfni og jákvætt viðhorf
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Framúrskarandi samskiptafærni og rík þjónustulund
Fríðindi í starfi
  • Farsímaáskrift og nettenging heima
  • Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
  • Öflugt starfsmannafélag og aðgangur að orlofshúsum víðs vegar um landið
  • Heilsu- og hamingjupakka sem inniheldur m.a. samgöngustyrk, líkamsræktarstyrk, styrk fyrir sálfræðiþjónustu og krabbameinsskoðun
Advertisement published24. June 2026
Application deadline5. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Hraun 158199, 731 Reyðarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags