Kennarasamband Íslands
Kennarasamband Íslands

Lögfræðingur í teymi félags- og kjaramála

Kennarasamband Íslands auglýsir laust til umsóknar starf lögfræðings í teymi félags- og kjaramála á skrifstofu sambandsins. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á réttindamálum launafólks og kjarasamningum.

Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér mikilvægt hlutverk við að tryggja faglega og trausta lögfræðilega þjónustu við KÍ, aðildarfélög þess og félagsfólk. Mikilvægt er að viðkomandi hafi framúrskarandi samskiptahæfni, geti unnið sjálfstætt og í teymi, sýni frumkvæði í starfi og hafi sterkan vilja til að styðja við starfsemi og markmið KÍ.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkefnastjórnun lögfræðilegra verkefna innan KÍ
  • Lögfræðileg ráðgjöf til stjórnar, starfsfólks, aðildarfélaga og félagsfólks
  • Þátttaka/Ráðgjöf í kjarasamningsgerð að beiðni formanna aðildarfélaga
  • Yfirlestur samninga og samningagerð
  • Mat á lagalegri áhættu og umsagnir um lagafrumvörp
  • Aðstoð við undirbúning dómsmála og önnur lögfræðileg úrlausnarefni
  • Þátttaka/Seta í nefndum, ráðum og samráðshópum fyrir hönd KÍ
  • Þróun og yfirferð verkferla í lögfræðilegu tilliti
  • Ritun lögfræðilegrar umfjöllunar á miðla KÍ
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Fullnaðarpróf í lögfræði
  • Að minnsta kosti tveggja ára starfsreynsla
  • Mjög góð þekking á vinnurétti, stjórnsýslurétti og persónuvernd
  • Mjög góð greiningarhæfni
  • Mjög góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og drifkraftur í starfi
  • Lausnamiðuð hugsun og nákvæmni
  • Hæfni til að vinna undir álagi og góð skipulagshæfni
  • Hæfni til að starfa í teymi, miðla þekkingu og stuðla að jákvæðu og árangursríku samstarfi
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti
  • Þekking á Norðurlandamáli er kostur
  • Lögmannsréttindi eru kostur
Advertisement published1. April 2026
Application deadline15. April 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Borgartún 30, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags