Samgöngustofa
Samgöngustofa
Samgöngustofa

Lögfræðingur á umferðarsviði

Samgöngustofa leitar að öflugum einstaklingi í stöðu lögfræðings á sviði umferðar hjá stofnuninni. Hlutverk umferðarsviðs er að efla umferðaröryggi með því að stuðla að öruggri notkun ökutækja. Helstu verkefni sviðsins eru stjórnsýsla, skráningar, eftirlit og leyfisveiting á sviði umferðarmála. Starfsemi sviðsins er í stöðugri þróun í samræmi við þarfir samfélagsins á hverjum tíma með umhverfissjónarmið og tækninýjungar að leiðarljósi. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á umferðaröryggi, stöðugum umbótum og er góður liðsmaður.

Í boði er spennandi starf hjá metnaðarfullri stofnun með öflugum mannauði, skýran samfélagslegan tilgang og framtíðarsýn. Lögð er áhersla á uppbyggingu faglegs starfsumhverfis, góða starfsaðstöðu og sveigjanleika í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur þvert á deildir sviðsins og styður við faglega stjórnsýslu með ráðgjöf, aðstoðar við mótun verklags og innleiðingar nýrra krafna og styður almennt við framkvæmd verkefna.

  • Ráðgjöf og umsagnir um lög og reglugerðir og svör við fyrirspurnum frá stjórnvöldum og almenningi.

  • Mat á áhrifum og vinna við innleiðingu ESB-gerða.

  • Meðferð stjórnvaldsákvarðana, upplýsingabeiðna og persónuverndarmála.

  • Fræðsla um stjórnsýslu og lagaumhverfi til starfsfólks.

  • Þátttaka í alþjóðastarfi er varða starfsemi umferðarsviðs.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Grunn- og meistaranám í lögfræði.

  • Haldgóð reynsla eða þekking á sviði opinberrar stjórnsýslu.

  • Reynsla eða þekking á Evrópurétti, Þjóðarétti og EES-samningnum.

  • Reynsla og þekking á regluverki samgöngumála er kostur.

  • Skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði í starfi.

  • Góð hæfni í samskiptum, jákvætt og lausnamiðað viðhorf.

  • Góð færni í íslensku og ensku í rituðu og mæltu máli.

  • Góð almenn tölvukunnátta.

Advertisement published15. May 2026
Application deadline26. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Ármúli 2, 108 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags