Leikskólinn Óskaland
Leikskólinn Óskaland
Leikskólinn Óskaland

Leitað eftir deildarstjóra, leikskólakennurum og/eða leiðbeinendum

Hæ hæ!

Eruð þið ekki til í að slást í hóp faglegra og öflugra deildarstjóra við leikskólann Óskaland. Já fleiri, við þurfum líka öfluga og faglega kennara og leiðbeinendur við leikskólann til að móta framtíðina í gróskumiklum leikskóla?

Leikskólinn Óskaland er níu deilda leikskóli með pláss fyrir 152 börn. Óskaland er staðsett við Finnmörk 1, í Hveragerði í grónu hverfi þar sem stutt er í fjölbreytta skógi vaxna náttúru. 2025 voru fjórar nýjar deildir teknar í notkun við leikskólann auk glæsilegrar lóðar.

Einkunnarorð Óskalands eru: Leikur – lífsgleði – lærdómur

Í Óskalandi er sjálfsprottinn leikur aðal kennslutækið auk þess sem unnið með grenndar- og útikennslu, Vináttuverkefni Barnaheilla, Hugarfrelsi og Lubba.

Leitað er að metnaðarfullum, skapandi og jákvæðum deildarstjórum, leikskólakennurum og/eða leiðbeinendum með góða hæfni í mannlegum samskiptum. Um er að ræða bæði stöðu til frambúðar og afleysingu í fæðingarorlofi með möguleika á áframhaldandi starfi. Viðkomandi þurfa að vera tilbúnir til að taka þátt í uppeldi og menntun barna í nánu samstarfi við stjórnendur og hafa gott vald á íslenskri tungu. Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð.

Fríðindi í starfi:

· Forgangur í leikskólapláss

· Frítt fæði

· Stytting vinnuvikunnar

· Sundkort í sundlaugina í Laugaskarði

Umsóknarfrestur er til 23.maí nk.

Umsóknum skal skilað á netfangið [email protected] ásamt ferilskrá.

Nánari upplýsingar veita Gunnvör Kolbeinsdóttir skólastjóri og Eva Hrönn Jónsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 4834139 eða á netfangið: [email protected]

Starfið hentar öllum kynjum. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.

Advertisement published5. May 2026
Application deadline23. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Finnmörk 1, 810 Hveragerði
Type of work
Professions
Job Tags